Ferill 416. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 557  —  416. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um eignarhald ríkisins á fasteignum á landsbyggðinni.

Frá Jónínu Brynjólfsdóttur.


     1.      Hver er stefna ríkisins um eignarhald fasteigna á landsbyggðinni, m.a. um hvort treysta eigi alfarið á leigusamninga við sveitarfélög eða einkaaðila?
     2.      Nær fyrrgreind stefna til húsnæðis með sérhæfðum kröfum, svo sem starfsstöðva lögreglu við landamæri?
     3.      Telur ráðherra æskilegt að sveitarfélög taki að sér að byggja húsnæði með sérhæfðum kröfum fyrir ríkið á þeim svæðum þar sem markaðsaðstæður eru óhagstæðar, eins og óskað hefur verið eftir varðandi lögreglustöðina á Seyðisfirði?
     4.      Telur ráðherra að núverandi stefna ríkisins um að leigja húsnæði á landsbyggðinni samræmist markmiðum stefnumótandi byggðaáætlunar 2022–2036 um fjölgun vinnurýma og óstaðbundinna starfa?
     5.      Hafa vinnustaðaklasar verið byggðir upp á landsbyggðinni frá ársbyrjun 2022 í samstarfi ríkis, sveitarfélaga og annarra aðila, þannig að góð vinnuaðstaða sé tryggð sem víðast? Svar óskast sundurliðað eftir staðsetningu og stofnunum ríkisins.
     6.      Hvað hefur vinnurýmum ríkisins á landsbyggðinni fjölgað mikið frá ársbyrjun 2022? Svar óskast sundurliðað eftir landshlutum og stofnunum ríkisins.


Skriflegt svar óskast.