Ferill 138. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 562  —  138. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um rekstur og gjöld á bílastæðum Isavia á innanlandsflugvöllum.


     1.      Hverjar voru heildartekjur af innheimtu bílastæðagjalda á innanlandsflugvöllum árið 2024 og hvernig skiptast þær milli langtíma- og skammtímastæða?
    Heilt yfir hefur innleiðing gjaldtöku á bílastæðum við flugvellina á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík gengið vel. Komið var til móts við gagnrýni á Akureyri og Egilsstöðum árið 2024 og samkvæmt tilmælum frá þáverandi innviðaráðherra var ákveðið að hafa fyrstu 14 tíma gjaldfrjálsa á þeim flugvöllum, en þar með lækkuðu tekjumöguleikar verulega. Heildartekjur félagsins árið 2024 voru tæpar 78 millj. kr. og munu þær tekjur nýtast Isavia innanlandsflugvöllum ehf. og þar með ríkinu til eflingar á innanlandsflugi. Engin aðgreining er á milli langtíma- og skammtímastæða í bókhaldi félagsins

     2.      Hver er áætlun um tekjur af innheimtu bílastæðagjalda á innanlandsflugvöllum næstu þrjú ár?
    Áætlun félagsins gerir ráð fyrir um 150 millj. kr. tekjum á ári af bílastæðum.

     3.      Renna tekjur af bílastæðagjöldunum til viðhalds og uppbyggingar að öllu leyti eða renna þær með einhverjum hætti inn í almennan rekstur Isavia?
    Markmiðið með tekjuöfluninni er að afla fjármuna til að laga ásýnd og aðkomu og bæta öryggi á bílastæðum við flugstöðvar. Slíkar framkvæmdir geta kostað mikið fjármagn og því eðlilegt að ekki sé farið í slíkt strax á fyrsta ári.

     4.      Hver var stofnkostnaður við fjárfestingu í búnaði og uppsetningu hans á bílastæðunum?
    Heildarkostnaður við uppsetningu á búnaði á bílastæðum við flugvelli, þ.m.t. vegna raflagna, myndavéla, tölvuþjóna, tenginga, auglýsinga, skiltagerðar og ýmiss annars kostnaðar, nam um 60 millj. kr.

     5.      Hver var kostnaður við rekstur bílastæða, sundurliðað eftir mismunandi kostnaðarliðum, svo sem snjómokstri, launagjöldum og viðhaldi, árið 2024, og hverjar eru áætlanir fyrir árin 2025–2027?
    Heildarrekstrarkostnaður bílastæðanna sem gjaldfærður var árið 2024 er um 24 millj. kr. á öllum þremur völlunum. Í þeirri fjárhæð er ekki launakostnaður sem fellur til vegna vinnu starfsmanna innanlandsflugvalla, hvort sem það er vegna framlags starfsmanna á bílastæði eða yfirstjórnar sem tengist málefnum þeirra.
    Snjómokstur á bílastæðum er unninn af sjálfstæðum verktökum á grundvelli verðfyrirspurnar á Reykjavíkur- og Akureyrarflugvelli og því ekki unnt að gefa upp sundurliðun á þeim kostnaðarlið með tilliti til samkeppnissjónarmiða.
    Samkvæmt áætlun næsta árs er gert ráð fyrir um 50 millj. kr. í rekstur á bílastæðum allra þriggja flugvallanna og er það fyrir utan framkvæmdir en ræðst það af innheimtu bílastæðatekna.
    Framkvæmdir á bílastæðum eru kostnaðarsamar og getur fjármögnun því tekið nokkur ár.

     6.      Hve margir voru ranglega rukkaðir um bílastæðagjöld árið 2024 vegna þess að búnaður mat ekki rétt komu og brottför bifreiðar? Óskað er eftir upplýsingum um fjölda tilvika og hvernig tekið hefur verið á málum.
    Brugðist hefur verið við kvörtun viðskiptavina og skoðað hvert og eitt tilvik og gerð leiðrétting ef tilefni er til og kvörtun réttmæt en ekki hefur verið haldið utan um þann fjölda sérstaklega.

     7.      Hafa borist kærur vegna mögulegrar ólögmætrar innheimtu bílastæðagjalda? Óskað er eftir upplýsingum um fjölda kæra og kvartana og niðurstöður þeirra ef einhverjar liggja fyrir. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um þau úrræði sem þeim standa til boða sem telja sig hafa verið ranglega rukkaða.
    Innanlandsflugvöllum hafa ekki borist kærur vegna þessa. Fyrirspurn barst frá Persónuvernd varðandi úrvinnslu gagna og henni hefur verið svarað með skýringum. Neytendastofa hefur jafnframt bent á úrbótatækifæri í upplýsingagjöf og farið verður að þeim ábendingum. Í tilfelli kvartana þá hefur hvert tilfelli verið skoðað og metið.

Svar við öllum töluliðum óskast sundurliðað eftir flugvöllum.
    Skipting tekna er að 79% eru frá bílastæði Reykjavíkurflugvallar og 21% frá landsbyggðinni.
    Varðandi skiptingu kostnaðarliða þá telja Innanlandsflugvellir að ekki sé hægt að veita þær upplýsingar með tilliti til samkeppni og einnig þar sem um er að ræða mismunandi rekstrarform eftir bílastæðum flugvallanna.