Ferill 340. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 564  —  340. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Sigurjóni Þórðarsyni um stofnmælingu grásleppu.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu margar grásleppur veiddust í hverju togi við stofnmælingu botnfiska á vegum Hafrannsóknastofnunar ár hvert árin 2012–2025 á þeim togstöðvum þar sem grásleppa veiddist?
     2.      Hver var upphafsstaðsetning og tímasetning hvers togs við stofnmælingu botnfiska á vegum Hafrannsóknastofnunar ár hvert árin 2012–2025 þar sem grásleppa veiddist?
     3.      Hversu margir dagar voru liðnir frá síðasta stórstreymi þegar tog var dregið á hverri togstöð þar sem grásleppa veiddist við stofnmælingu botnfiska á vegum Hafrannsóknastofnunar ár hvert árin 2012–2025?


    Að jafnaði hefur grásleppa veiðst á um 217 stöðvum í stofnmælingu botnfiska á Íslandsmiðum (SMB) sem er ríflega þriðjungur stöðva sem teknar eru á hverju ári. Meðalveiði á tímabilinu eru 920 grásleppur en veiðin hefur sveiflast frá tæplega 430 grásleppum í tæplega 1.600. Hafrannsóknastofnun hefur tekið saman umbeðin gögn sem fylgja í viðhengi. Eftirfarandi tafla er samantekt gagnanna.

Ár Fjöldi stöðva Fjöldi grásleppa Meðaltal daga frá stórstreymi
2012 222 953 7.11
2013 156 576 6.71
2014 192 949 6.30
2015 211 1089 6.27
2016 235 1460 7.50
2017 251 1020 6.48
2018 221 906 6.63
2019 218 777 7.72
2020 216 944 6.84
2021 299 1578 7.79
2022 193 797 6.79
2023 212 737 6.64
2024 237 676 7.58
2025 171 426 5.27

Fylgiskjal.

www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0564-f_I.pdf