Ferill 199. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 567 — 199. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ingvari Þóroddssyni um kostnað við gerð og þróun upplýsingatæknilausna.
Í meðfylgjandi töflu er að finna upplýsingar um þann hluta kostnaðar sem færður hefur verið til bókar á árunum 2018–2024 og telst hafa verið vegna þróunar upplýsingatæknilausna samkvæmt fyrirspurninni.
| Reikningsár | Rekstrarkostnaður vegna þróunar upplýsingatæknilausna |
| 2018 | 8.679.951 |
| 2019 | 62.791.151 |
| 2020 | 60.263.123 |
| 2021 | 21.756.187 |
| 2022 | 5.177.995 |
| 2023 | 7.969.689 |
| 2024 | 4.386.053 |
| Samtals | 171.024.149 |
Til viðbótar hefur ráðuneytið greitt 182.227.575 kr. til Umbru, þjónustumiðstöðvar Stjórnarráðsins á tímabilinu, en þróun skýjalausna fyrir Stjórnarráðið fer fram á vettvangi Umbru. Ráðuneytið býr ekki yfir upplýsingum um að hve miklu leyti sá kostnaður sem fellur til hjá Umbru telst til þróunar upplýsingatæknilausna.
| Reikningsár | Greitt til Umbru, þjónustumiðstöðvar Stjórnarráðsins |
| 2018 | 11.429.461 |
| 2019 | 20.763.338 |
| 2020 | 27.348.523 |
| 2021 | 29.465.152 |
| 2022 | 23.462.578 |
| 2023 | 20.322.824 |
| 2024 | 49.435.699 |
| Samtals | 182.227.575 |
Um það bil 10 vinnustundir fóru í að svara þessari fyrirspurn.