Ferill 418. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 570 — 418. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um tækjakost í heilbrigðisþjónustu.
Frá Berglindi Hörpu Svavarsdóttur.
1. Hefur nægjanlegu fjármagni verið varið í kaup á nauðsynlegum tækjakosti í vinnuumhverfi heilbrigðisstarfsfólks á landsbyggðinni sem er fjarri sérhæfðri heilbrigðisþjónustu?
2. Tryggir núverandi tækjakostur í umhverfi heilbrigðisstarfsfólks á landsbyggðinni upplýsta faglega bráðagreiningu á sem skemmstum tíma?
3. Er markmið ráðuneytisins að upplýst bráðagreining fari fram á sem skemmstum tíma á landsbyggðinni og eru vinnuaðstæður heilbrigðisstarfsfólks þar fullnægjandi?
Skriflegt svar óskast.