Ferill 420. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 572 — 420. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um læknaskort.
Frá Berglindi Hörpu Svavarsdóttur.
1. Telur ráðherra viðvarandi læknaskort vera hér á landi?
2. Hyggst ráðherra beina því til kennslusjúkrahúsa að þau stuðli áfram að því að Íslendingum, sem stunda nám í læknisfræði við erlenda háskóla, standi til boða að stunda verknám hérlendis?
3. Telur ráðherra mikilvægt að íslenskir læknanemar við erlenda háskóla starfi hér á landi eftir útskrift til að koma í veg fyrir læknaskort?
4. Telur ráðherra mikilvægt að skapa hvata fyrir íslenska læknanema við erlenda háskóla til að starfa hér á landi? Ef svo er, hvers konar hvatar kæmu til greina?
Skriflegt svar óskast.