Ferill 421. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 573  —  421. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um viðmiðanir um afkomu og fjárhagsstöðu sveitarfélaga.

Frá Ragnhildi Jónsdóttur.


     1.      Hver er afstaða ráðherra til breytingar á 3. mgr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, um viðmiðanir um afkomu og fjárhagsstöðu sveitarfélaga á þann hátt að hún taki ekki einungis til 2. tölul. 2. mgr. 64. gr. laganna heldur einnig til 1. tölul. sömu greinar? Ef afstaðan er jákvæð, hvenær hyggst ráðherra leggja fram frumvarp þess efnis?
     2.      Hver er afstaða ráðherra til breytingar á 13. gr. reglugerðar nr. 502/2012 í þá veru að við útreikning á viðmiðum um jafnvægi í rekstri sveitarfélaga verði settir inn sambærilegir frádráttarliðir og koma fram í 2. og 4. tölul. 2. mgr. 14. gr. sömu reglugerðar?


Skriflegt svar óskast.