Ferill 422. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 574  —  422. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um mat á áhrifum lagasetningar á lýðheilsu.

Frá Ragnhildi Jónsdóttur.


     1.      Hvernig fer mat á áhrifum lagasetningar á lýðheilsu fram?
     2.      Eru til leiðarvísar og greiningarrammar fyrir slíkt mat? Ef svo er ekki, er unnið að gerð þeirra og hvenær er áætlað að slíkt matstæki verði tilbúið?
     3.      Hverjir koma að framkvæmd lýðheilsumats og hvernig er gætt að því að niðurstaðan byggist á faglegum og hlutlægum forsendum?


Skriflegt svar óskast.