Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 576, 156. löggjafarþing 172. mál: rekstraraðilar sérhæfðra sjóða og verðbréfasjóðir (stjórnvaldsfyrirmæli).
Lög nr. 28 2. júní 2025.

Lög um breytingu á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og lögum um verðbréfasjóði (stjórnvaldsfyrirmæli).


I. KAFLI
Breyting á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020.

1. gr.

     Fyrirsögn VIII. kafla laganna verður: Starfsemi yfir landamæri.

2. gr.

     9. tölul. 2. mgr. 117. gr. laganna orðast svo: Form og efni tilkynninga og staðfestinga og form og aðferðir við sendingar vegna starfsemi rekstraraðila sérhæfðra sjóða yfir landamæri og markaðssetningar sérhæfðra sjóða yfir landamæri skv. VIII. kafla.

II. KAFLI
Breyting á lögum um verðbréfasjóði, nr. 116/2021.

3. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 26. gr. laganna:
  1. Við 2. mgr. bætist: skv. 107. gr.
  2. 5. mgr. fellur brott.


4. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 100. gr. laganna:
  1. 12. mgr. orðast svo:
  2.      Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um framkvæmd þessa ákvæðis, svo sem um aðgengi lögbærra yfirvalda í gistiríki að upplýsingum og gögnum samkvæmt ákvæði þessu.
  3. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
  4.      Seðlabanki Íslands skal setja reglur um form og efni staðlaðrar tilkynningar til notkunar fyrir verðbréfasjóði vegna tilkynningar samkvæmt ákvæði þessu, þar á meðal hvaða skjöl þurfi að þýða á önnur tungumál, form og efni staðfestingar Fjármálaeftirlits skv. 4. og 5. mgr. og verklag við upplýsingaskipti og notkun rafrænna samskipta á milli lögbærra yfirvalda vegna tilkynningar samkvæmt ákvæði þessu.


5. gr.

     Í stað orðanna „Ráðherra er heimilt að setja reglugerð“ í 9. mgr. 127. gr., 3. mgr. 128. gr. og 5. mgr. 129. gr. laganna kemur: Seðlabanki Íslands skal setja reglur.

6. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 134. gr. laganna:
  1. 8. tölul. 1. mgr. fellur brott.
  2. 29. tölul. 1. mgr. orðast svo: Framkvæmd 100. gr., svo sem um aðgengi lögbærra yfirvalda í gistiríki að upplýsingum og gögnum samkvæmt ákvæðinu.
  3. 31.–33. tölul. 1. mgr. falla brott.
  4. Á eftir 13. tölul. 2. mgr. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Form og efni staðlaðrar tilkynningar til notkunar fyrir verðbréfasjóði vegna tilkynningar skv. 100. gr., þar á meðal hvaða skjöl þurfi að þýða á önnur tungumál, form og efni staðfestingar Fjármálaeftirlits skv. 4. og 5. mgr. 100. gr., verklag við upplýsingaskipti og notkun rafrænna samskipta á milli lögbærra yfirvalda vegna tilkynningar skv. 100. gr.
  5. Við 2. mgr. bætast þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:
    1. Upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda og milli Fjármálaeftirlitsins og ESMA, sbr. 127. gr.
    2. Ferla við samstarf lögbærra yfirvalda um vettvangsathuganir eða rannsóknir, sbr. 128. gr.
    3. Upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda og milli Fjármálaeftirlitsins og ESMA, sbr. 129. gr.


7. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 26. maí 2025.