Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 582 — 309. mál.
Svar
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um stoðþjónustu.
1. Hversu margir starfsmenn á vegum ráðuneytisins starfa við stoðþjónustu? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti, undirstofnunum þess og starfseiningum.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Að hve miklu leyti nýta viðkomandi einingar sér stoðþjónustu Fjársýslu ríkisins?
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Ráðuneytið er í bókhaldsþjónustu hjá Fjársýslu ríkisins, en í henni felst grunnþjónusta vegna samþykktar og greiðslu reikninga (gjöld), útgáfu reikninga (tekjur) og bókun sjóðbóka og kreditkorta. Undirbúningur launavinnslu fer að öllu leyti fram innan húss en sjálf launakeyrslan er afgreidd af Fjársýslu ríkisins.
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn.
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn er í bókhaldsþjónustu hjá Fjársýslu ríkisins, en í henni felst grunnþjónusta vegna samþykktar og greiðslu reikninga (gjöld), útgáfu reikninga (tekjur) og bókunar sjóðbóka og kreditkorta. Undirbúningur launavinnslu fer að öllu leyti fram innan húss en sjálf launakeyrslan er afgreidd af Fjársýslu ríkisins.
Íslenski dansflokkurinn.
Stofnunin nýtir stoðþjónustu Fjársýslu ríkisins að hluta. Stofnunin undirbýr gögn fyrir launavinnslu, en Fjársýslan sér alfarið um sjálfa launakeyrsluna. Þá annast Fjársýslan einnig bókhaldsfærslur í bókhaldskerfið Orra eftir að stofnunin hefur unnið og skilað inn nauðsynlegum gögnum og skilum. Þannig fer bæði launakeyrsla og bókhaldsfærslur fram í samstarfi við Fjársýslu ríkisins.
Fjölmiðlanefnd.
Fjölmiðlanefnd nýtir þá stoðþjónustu sem Fjársýsla ríkisins býður stofnunum sem tengist m.a. bókhaldi, gerð ársreikninga, launagreiðslum o.fl.
Hugverkastofan.
Hugverkastofan nýtir greiðsluþjónustu hjá Fjársýslu ríkisins auk launaþjónustu að ákveðnu marki.
Þjóðskjalasafn Íslands.
Þjóðskjalasafnið nýtir bókhalds- og greiðsluþjónustu Fjársýslu ríkisins.
Háskóli Íslands.
Fjársýsla ríkisins sér um kerfisrekstur fyrir launakerfi, viðverukerfi og ráðningakerfi. Þá greiðir Fjársýslan laun fyrir Háskóla Íslands, en launaafgreiðsla og launavinnsla fer fram hjá háskólanum. Háskóli Íslands er með sjálfstætt bókhald að öðru leyti, er með sérbók í Orra, bókhaldskerfi ríkisins, og nýtir því ekki bókhaldsþjónustu Fjársýslunnar.
Þjóðleikhúsið.
Launakeyrslur (ekki vinnslur) og gerð ársreiknings ár hvert er það eina sem fer í gegnum Fjársýslu ríkisins (þjónusta sem veitt er öllum stofnunum og ekki er greitt fyrir sérstaklega).
Þjóðminjasafn Íslands.
Stofnunin er í almennri þjónustu Fjársýslu ríkisins, en ekki er keypt nein viðbótarþjónusta.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Stofnunin er í bókhalds- og launaþjónustu hjá Fjársýslu ríkisins. Hún nýtir stoðþjónustu Fjársýslunnar í miklum mæli, í nokkur skipti á dag að meðaltali.
Rannís.
Rannís er í reglubundum samskiptum við Fjársýsluna og stofnunin nýtir þjónustu hennar að mjög miklu leyti. Samskiptin tengjast m.a. bókhaldi, umsýslu sjóða, afstemmingum og uppgjörum, greiðsluþjónustu, launavinnslu og mannauðsmálum.
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.
Fjársýsla ríkisins sér um eftirfarandi þætti: Greiðsluþjónustu, bókhaldsþjónustu, þjónustu kjara og mannauðsýslu, launaþjónustu, opinber innkaup í gegnum rammasamninga.
Háskólinn á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri nýtir þjónustu hjá Fjársýslu ríkisins að ákveðnu marki. Beiðnikerfi Fjársýslu ríkisins er notað þegar kemur að málum varðandi Orra eða AKRA-kerfið. Fjársýslan greiðir laun starfsmanna sem háskólinn sér að öðru leyti um að reikna út.
Kvikmyndamiðstöð Íslands.
Stofnunin er í bókhalds-, greiðslu- og launaþjónustu hjá Fjársýslu ríkisins.
Háskólinn á Hólum.
Háskólinn á Hólum útvistar greiðsluþjónustu og launaþjónustu til Fjársýslu ríkisins og fær ráðgjöf varðandi sértæk mannauðsmál sem krefjast sérfræðikunnáttu umfram almenna umsjón mannauðsmála.
Miðstöð íslenskra bókmennta.
Stofnunin nýtir þjónustu Fjársýslu ríkisins við greiðslu allra styrkja sem Miðstöð íslenskra bókmennta veitir, auk þjónustu við greiðslu greiðslukorta og reikninga.
Hljóðbókasafn Íslands.
Hljóðbókasafn Íslands er í bókhaldsþjónustu Fjársýslu ríkisins. Fjársýslan sér um bókun reikninga og launavinnslu fyrir stofnunina.
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Stofnunin er í bókhalds- og launaþjónustu hjá Fjársýslu ríkisins.
Fjölmiðlanefnd.
Fjölmiðlanefnd nýtir þá stoðþjónustu sem Fjársýsla ríkisins býður stofnunum sem tengist m.a. bókhaldi, gerð ársreikninga, launagreiðslum o.fl.
Náttúruminjasafn Íslands.
Náttúruminjasafn Íslands nýtir sér þjónustu Fjársýslu ríkisins að verulegu leyti varðandi fjármálabókhald, þ.e. launavinnslu, orlofsmál og almennt utanumhald um rekstur (útgjöld og tekjur). Notast er við kerfin Orra og AKRA.
Gljúfrasteinn.
Stofnunin er með bókhalds - og launaþjónustu hjá Fjársýslu ríkisins en vinnur þau gögn sem send eru mánaðarlega til Fjársýslunnar.
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Stofnunin er í launa-, greiðslu- og bókhaldsþjónustu hjá Fjársýslu ríkisins.
Listasafn Einars Jónssonar.
Listasafn Einars Jónssonar er í bókhaldsþjónustu hjá Fjársýslu ríkisins en sú þjónusta telst ekki til starfsgilda innan stofnunarinnar.
Landbúnaðarháskóli Íslands svaraði aðeins fyrri spurningunni. Ekki bárust svör frá Listasafni Íslands og Kvikmyndasafni Íslands.