Ferill 428. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 585 — 428. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um viðhald og notkun á húsnæði í eigu ríkisins.
Frá Degi B. Eggertssyni.
1. Hve mikið húsnæði, í fermetrum talið, sem ríkið á eða hefur á leigu stendur tómt af einhverjum ástæðum? Svar óskast sundurliðað eftir málaflokkum og landshlutum.
2. Hversu hátt hlutfall þessa húsnæðis, í fermetrum talið, stendur autt vegna gruns um eða staðfests raka og myglu? Svar óskast sundurliðað eftir málaflokkum og landshlutum.
3. Hvert er áætlað verðmæti ofangreinds húsnæðis sem stendur tómt?
4. Hver hefur kostnaðurinn verið við að útvega, leigja eða kaupa annað húsnæði í stað þess húsnæðis sem þarfnast viðhalds?
5. Hve mörg ráðuneyti hafa þurft að gera breytingar á sínum húsnæðismálum vegna viðhalds, raka og myglu? Liggur fyrir heildarkostnaður vegna þessa?
6. Hversu háar fjárhæðir hafa farið í viðhaldsverkefni og sérstakt viðhald vegna raka og myglu sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir málaflokkum og landshlutum.
7. Hefur farið fram heildstæð úttekt á þörf fyrir viðhald og meiri háttar viðhald á húsnæði ríkisins í heild eða í einstökum málaflokkum?
Skriflegt svar óskast.