Ferill 382. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 590  —  382. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur um lækna í Rangárvallasýslu.


     1.      Hve margir læknar eru fastráðnir í Rangárvallasýslu?
    Sem stendur er enginn fastráðinn læknir í Rangárvallasýslu. Fjölmörg verkefni eru í vinnslu til að stuðla að fleiri fastráðningum til framtíðar.
     2.      Hve margir læknar eru ráðnir sem verktakar í Rangárvallasýslu?
    Fjöldi verktakaráðinna lækna er breytilegur frá einum tíma til annars. Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) er með samning við norska ráðningaskrifstofu sem útvegar stofnuninni lækna. Tveir íslenskir læknar koma reglulega til starfa og sinna samtals 0,75 stöðugildi. Að jafnaði eru tveir til þrír læknar við störf alla daga og flesta daga eru þrír læknar á dagvinnutíma.
     3.      Stendur til að fastráða lækni í Rangárvallasýslu?

    Það er stefna HSU að hafa fastráðna lækna starfandi við stofnunina þar sem það stuðlar að stöðugleika og samfellu í þjónustu. Yfirlæknastaða á Heilsugæslu Rangárþings hefur verið auglýst ítrekað en ekki hefur tekist að manna stöðuna hingað til.
    HSU hefur lagt sig fram við að laða til sín umsækjendur, m.a. með því að bjóða upp á húsnæði og tryggt leikskólapláss. Þrátt fyrir þessar aðgerðir hefur ekki tekist að fastráða lækni enn sem komið er en áfram verður unnið að því.