Ferill 342. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 593  —  342. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um meðferðarúrræði og lokanir.


     1.      Hvaða meðferðarúrræði eru í boði fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga, hver þeirra eru opin allt árið og hverjum hefur verið lokað hluta úr ári á sl. fjórum árum? Svar óskast sundurliðað eftir árum, úrræðum og ástæðu lokunar.
    Ýmis meðferðarúrræði standa fólki með áfengis- eða vímuefnavanda til boða. Þeirra á meðal er sjúkrahúsið Vogur og lyfjameðferð við ópíóíðafíkn á vegum SÁÁ, sem hefur verið opið allt árið án undantekninga. Göngudeildir og meðferðarstöð SÁÁ á Vík hafa hins vegar verið lokaðar að hluta til, nánar tiltekið í sex vikur á sumrin öll árin frá aldamótum, að undanskildu árinu 2022 þegar þjónustan var opin yfir sumartímann. Hefur SÁÁ talið nauðsynlegt að draga úr starfsemi á þennan hátt vegna skorts á rekstrarfé. Þá hefur einnig reynst erfitt að manna stöður afleysingastarfsfólks með þartilbær réttindi eða reynslu í sálfélagslegri meðferð eins og veitt er hjá SÁÁ.
    Meðferðarheimilið að Krýsuvík starfrækir meðferð fyrir einstaklinga með vímuefnaröskun og hefur verið opið allt árið um kring, án hléa, síðastliðin fjögur ár. Sama á við um Hlaðgerðarkot, meðferðarheimili á vegum Samhjálpar, sem hefur starfað án lokana á sama tímabili.
    Rauði krossinn starfrækir ekki meðferðarúrræði fyrir fólk með vímuefnavanda en sinnir hins vegar skaðaminnkunarverkefnum og lágþröskulda heilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga sem nota vímuefni. Þar má nefna neyslurýmið Ylju í Reykjavík, sem opið er fimm daga vikunnar allt árið, og Frú Ragnheiði, skaðaminnkandi þjónustu á vettvangi. Þjónustan er veitt í Reykjavík sex daga vikunnar, á Suðurnesjum tvisvar í viku og á Akureyri þrisvar í viku, allt árið um kring.
    Af framangreindu má sjá að meðferðarúrræði fyrir fólk með áfengis- eða vímuefnavanda eru víðtæk og misjafnt er hvernig rekstri þeirra hefur verið háttað yfir árið, en á síðustu fjórum árum hefur lokun hluta úr ári einungis átt við um göngudeildar- og meðferðarþjónustu SÁÁ á Vík. Önnur úrræði hafa haldið starfsemi sinni úti allt árið.
    Efling meðferðarúrræða við fíknivanda er eitt af áherslumálum ríkisstjórnarinnar. Áætlað er að styrkja málaflokkinn um 350 millj. kr. á þessu ári í fjáraukalögum, m.a. til þess að bæta aðgengi að þjónustunni og koma í veg fyrir sumarlokanir. Þá verða meðferðarúrræðin styrkt varanlega í fjárlögum næsta árs.

     2.      Hvaða meðferðarúrræði í geðheilbrigðisþjónustu vegna fíknisjúkdóma eru starfrækt, hver þeirra veita þjónustu allt árið og hverjum hefur verið lokað hluta úr ári á sl. fjórum árum? Svar óskast sundurliðað eftir árum, úrræðum og ástæðu lokunar.
    Á Landspítala eru starfrækt ýmis meðferðarúrræði í geðheilbrigðisþjónustu vegna vímuefnaröskunar sem miða að því að veita bæði bráða- og langtímastuðning við einstaklinga með samþættan geð- og vímuefnavanda. Á Landspítala er starfandi bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma, göngudeild geð- og fíknisjúkdóma, afeitrunardeild fyrir ólögráða ungmenni, Laufeyjarteymið sem er samfélagsgeðteymi fyrir einstaklinga með samslátt alvarlegra geðsjúkdóma og vímuefnavanda og Teigur sem er dagdeild geð- og fíknisjúkdóma.
    Öll framangreind úrræði veita þjónustu allan ársins hring. Á dagdeildinni Teigi er dregið úr HAM-hópmeðferðarúrræði í júlí, en á þeim tíma er undirbúningshópur fyrir meðferð þó áfram virkur sem og stuðningshópur fyrir þá sem lokið hafa meðferð. Boðið er upp á einstaklingsviðtöl yfir sumartímann á göngudeild og Teigi.
    Engum af framangreindum úrræðum hefur verið lokað hluta úr ári síðastliðin fjögur ár.