Ferill 367. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.

Þingskjal 594  —  367. mál.
Ráðherra. Tafla.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá frá Þorsteini B Sæmundssyni um greiðslur til frjálsra félagasamtaka.

     1.      Hversu háar fjárhæðir greiddi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og fyrirrennarar þess til frjálsra félagasamtaka á hverju ári undanfarin átta ár?
    Yfirlit yfir greiðslur ráðuneytisins og fyrirrennara þess til frjálsra félagasamtaka frá árinu 2017 til 2024 er að finna í eftirfarandi töflu. Yfirlitið inniheldur upplýsingar um veitta styrki og samningsbundnar greiðslur í tengslum við Grænfánaverkefnið (Skólar á grænni grein) sem er í gildi við Landvernd. Yfirlitið tekur ekki tillit til mögulegra greiðslna vegna vöru- eða þjónustukaupa til frjálsra félagasamtaka.

    

Rekstrarstyrkir Verkefnastyrkir Strandhreinsistyrkir Grænfáninn Styrkir alls
2017 12.950.000 20.480.000 - 6.00.000 39.430.000
2018 13.400.000 25.030.000 - 11.500.000 49.930.000
2019 20.000.000 22.050.000 - 14.000.000 56.050.000
2020 39.000.000 55.610.000 - 18.000.000 112.610.000
2021 49.000.000 36.181.000 20.000.000 26.000.000 131.181.000
2022 48.800.000 43.910.000 30.000.000 26.000.000 148.710.000
2023 52.080.000 - - 26.000.000 78.080.000
2024 52.500.000 - - 26.000.000 78.500.000

     2.      Hvaða félagasamtök fengu á því tímabili styrki frá ráðuneytinu, bæði beina rekstrarstyrki og styrki til verkefna, og hver var upphæð hvers styrks?
    Yfirlit yfir styrkgreiðslur ráðuneytisins til frjálsra félagasamtaka árin 2017–2024 má sjá í eftirfarandi töflum.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.





Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.