Ferill 315. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 595  —  315. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um stoðþjónustu.


     1.      Hversu margir starfsmenn á vegum ráðuneytisins starfa við stoðþjónustu? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti, undirstofnunum þess og starfseiningum.
    Í ráðuneytinu eru þrjár skrifstofur; skrifstofa ráðuneytisstjóra og innri þjónustu, skrifstofa greininga og fjármála, og skrifstofa stefnumótunar og innleiðingar. Undirstofnanir ráðuneytisins eru 30 talsins, þar af 27 framhaldsskólar. Í eftirfarandi upptalningu eru talin upp áætluð stöðugildi þeirra sem starfa við stoðþjónustu hjá hverri stofnun sem um ræðir. Í flestum tilvikum er ekki mögulegt að tilgreina nákvæman fjölda stöðugilda þeirra sem starfa við stoðþjónustu hjá hverri stofnun þar sem verkefni starfsmanna falla oft bæði undir stoðþjónustu og önnur verkefni. Þá getur verið um að ræða mismunandi starfshlutfall starfsfólks sem fellur undir stoðþjónustu, til að mynda er í einhverjum tilvikum ekki um að ræða heilt stöðugildi. Að auki verður að setja þann fyrirvara að misræmi getur verið á milli stofnana um fjölda stöðugilda við stoðþjónustu þar sem í fyrirspurn er hugtakið stoðþjónusta ekki skilgreint.
     Mennta- og barnamálaráðuneyti: Af starfsfólki ráðuneytisins starfa um tíu aðilar við stoðþjónustu en annað starfsfólk sinnir stoðþjónustu að einhverju leyti í störfum sínum og eftir því sem þörf er á hverju sinni.
     Barna- og fjölskyldustofa: Af starfsfólki stofnunarinnar starfa um fimmtán aðilar við stoðþjónustu en annað starfsfólk sinnir stoðþjónustu að einhverju leyti í störfum sínum og eftir því sem þörf er á hverju sinni.
     Miðstöð menntunar og skólaþjónustu: Af starfsfólki stofnunarinnar starfa um átta aðilar við stoðþjónustu en annað starfsfólk sinnir stoðþjónustu að einhverju leyti í störfum sínum og eftir því sem þörf er á hverju sinni.
     Ráðgjafar- og greiningarstöð: Af starfsfólki stofnunarinnar starfa um níu starfsmenn við stoðþjónustu.
     Borgarholtsskóli: Af starfsfólki skólans starfa um 15 aðilar við stoðþjónustu en annað starfsfólk sinnir stoðþjónustu að einhverju leyti í störfum sínum og eftir því sem þörf er á hverju sinni.
     Fjölbrautaskólinn í Breiðholti: Af starfsfólki skólans starfa um 22 aðilar við stoðþjónustu.
     Fjölbrautaskólinn í Garðabæ: Af starfsfólki skólans starfa um sex manns við stoðþjónustu.
     Fjölbrautaskólinn við Ármúla: Af starfsfólki skólans starfa um 11 aðilar við stoðþjónustu.
     Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra: Af starfsfólki skólans starfa um 14 aðilar við stoðþjónustu.
     Fjölbrautaskóli Snæfellinga: Af starfsfólki skólans starfa um fimm starfsmenn við stoðþjónustu.
     Fjölbrautaskóli Suðurlands: Af starfsfólki skólans starfa um 30 aðilar við stoðþjónustu en stöðugildin eru talsvert færri.
     Fjölbrautaskóli Suðurnesja: Af starfsfólki skólans starfa um 12 aðilar við stoðþjónustu.
     Fjölbrautaskóli Vesturlands: Af starfsfólki skólans starfa um 12 aðilar við stoðþjónustu en stöðugildin eru færri.
     Flensborgarskólinn í Hafnarfirði: Af starfsfólki skólans starfa um átta aðilar við stoðþjónustu í 7,3 stöðugildum.
     Framhaldsskólinn á Húsavík: Af starfsfólki skólans starfa þrír aðilar við stoðþjónustu.
     Framhaldsskólinn á Laugum: Af starfsfólki skólans starfa sex aðilar við stoðþjónustu í 4,65 stöðugildum.
     Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu: Við skólann er eitt stöðugildi við stoðþjónustu.
     Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ: Af starfsfólki skólans starfa átta aðilar við stoðþjónustu í sex stöðugildum.
     Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum: Af starfsfólki skólans starfa um sex aðilar við stoðþjónustu en annað starfsfólk kemur einnig að stoðþjónustu að einhverju leyti eftir þörfum og í tengslum við önnur verkefni.
     Kvennaskólinn í Reykjavík: Við skólann eru 8,5 stöðugildi við stoðþjónustu.
     Menntaskólinn að Laugarvatni: Af starfsfólki skólans starfa um níu starfsmenn við stoðþjónustu í um 5,5 stöðugildum.
     Menntaskólinn á Akureyri: Við skólann eru um níu stöðugildi við stoðþjónustu.
     Menntaskólinn á Egilsstöðum: Við skólann eru um sjö stöðugildi við stoðþjónustu.
     Menntaskólinn á Ísafirði: Af starfsfólki skólans starfa um þrír aðilar við stoðþjónustu en annað starfsfólk sinnir stoðþjónustu að einhverju leyti í störfum sínum og eftir því sem þörf er á hverju sinni.
     Menntaskólinn á Tröllaskaga: Af starfsfólki skólans starfa um þrír aðilar við stoðþjónustu í alls 2,2 stöðugildum.
     Menntaskólinn í Kópavogi: Af starfsfólki skólans starfa um 15 aðilar við stoðþjónustu.
     Menntaskólinn í Reykjavík: Af starfsfólki skólans starfa um 13 aðilar við stoðþjónustu.
     Menntaskólinn við Hamrahlíð: Af starfsfólki skólans starfa um 15 aðilar við stoðþjónustu.
     Menntaskólinn við Sund: Af starfsfólki skólans starfa um sex aðilar við stoðþjónustu.
     Verkmenntaskóli Austurlands: Af starfsfólki skólans starfa um átta aðilar við stoðþjónustu.
     Verkmenntaskólinn á Akureyri: Af starfsfólki skólans starfa um 14 aðilar við stoðþjónustu en annað starfsfólk sinnir jafnframt stoðþjónustu að einhverju leyti í störfum sínum og eftir því sem þörf er á hverju sinni.

     2.      Að hve miklu leyti nýta viðkomandi einingar sér stoðþjónustu Fjársýslu ríkisins?
     Mennta- og barnamálaráðuneyti: Ráðuneytið nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu, launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu þar sem það á við. Einnig notar ráðuneytið aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem við á.
     Barna- og fjölskyldustofa: Stofnunin nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu, launaþjónustu og þjónustu í ráðgjöf á sviði mannauðsmála ásamt tækniþjónustu þar sem það á við. Einnig notar stofnunin aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem við á.
     Miðstöð menntunar og skólaþjónustu: Stofnunin nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu, launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu þar sem það á við. Einnig notar stofnunin aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem við á.
     Ráðgjafar- og greiningarstöð: Stofnunin nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu þar sem það á við. Einnig notar stofnunin aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem við á.
     Borgarholtsskóli: Skólinn nýtir sér uppgjörsþjónustu þegar kemur að ársreikningi/ríkisreikningi og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu þar sem það á við. Einnig notar skólinn aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem við á.
     Fjölbrautaskólinn í Breiðholti: Skólinn nýtir sér þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu eingöngu til ráðgjafar og leiðsagnar þar sem það á við.
     Fjölbrautaskólinn í Garðabæ: Skólinn nýtir sér launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu þar sem það á við. Einnig notar skólinn aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem við á.
     Fjölbrautaskólinn við Ármúla: Skólinn nýtir sér launaþjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar. Einnig notar skólinn aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem við á.
     Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra: Skólinn nýtir sér launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar.
     Fjölbrautaskóli Snæfellinga: Skólinn nýtir sér launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu eftir þörfum. Einnig notar skólinn aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir þörfum.
     Fjölbrautaskóli Suðurlands: Skólinn nýtir sér þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu þar sem það á við. Einnig notar skólinn aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem við á.
     Fjölbrautaskóli Suðurnesja: Skólinn nýtir sér annað slagið þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar.
     Fjölbrautaskóli Vesturlands: Skólinn nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu, launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu þar sem það á við. Einnig notar skólinn aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem við á.
     Flensborgarskólinn í Hafnarfirði: Skólinn nýtir sér launaþjónustu og ráðningarkerfi Fjársýslunnar. Þá nýtir skólinn sér ráðgjöf frá kjara- og mannauðssviði Fjársýslunnar, ef og þegar þörf er á.
     Framhaldsskólinn á Húsavík: Bókhald er alfarið fært af Fjársýslunni.
     Framhaldsskólinn á Laugum: Skólinn nýtir sér launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar þar sem það á við. Einnig notar skólinn aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem við á.
     Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu: Skólinn nýtir sér launaþjónustu Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu þar sem það á við. Einnig notar skólinn aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem við á.
     Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ: Skólinn nýtir sér þjónustu Fjársýslunnar við lögbundin verkefni er varðar launagreiðslur.
     Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum: Skólinn nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu, launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar. Einnig er leitað til annarra eininga Fjársýslunnar eftir þörfum.
     Kvennaskólinn í Reykjavík: Skólinn nýtir sér launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu þar sem það á við.
     Menntaskólinn að Laugarvatni: Skólinn nýtir sér launaþjónustu og ráðgjöf kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar. Einnig leitar skólinn til Fjársýslunnar með margvísleg verkefni og álitamál.
     Menntaskólinn á Akureyri: Skólinn nýtir sér einkum launaþjónustu Fjársýslunnar en hefur ekki nýtt sér með sama mæli þjónustu kjara- og mannauðssviðs þar sem skólinn telur að hann þurfi sértækari þjónustu.
     Menntaskólinn á Egilsstöðum: Skólinn nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu Fjársýslunnar.
     Menntaskólinn á Ísafirði: Skólinn nýtir sér greiðsluþjónustu, launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu þar sem það á við. Einnig notar skólinn aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem við á.
     Menntaskólinn á Tröllaskaga: Skólinn nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu, launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu þar sem það á við. Einnig notar skólinn aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem við á.
     Menntaskólinn í Kópavogi: Skólinn nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu, hluta af launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu þar sem það á við. Einnig notar skólinn aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem við á.
     Menntaskólinn í Reykjavík: Skólinn nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu, launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu þar sem það á við.
     Menntaskólinn við Hamrahlíð: Skólinn nýtir sér ráðgjöf frá Fjársýslunni á þáttum er varða bókhalds- og greiðsluþjónustu og launaþjónustu ásamt því að leita til kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar.
     Menntaskólinn við Sund: Skólinn nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu, og þegar við á launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs ásamt tækniþjónustu að ákveðnu leyti.
     Verkmenntaskóli Austurlands: Skólinn nýtir sér bókhaldsþjónustu Fjársýslunnar að ákveðnu leyti. Einnig notar skólinn þjónustu kjara- og mannauðssviðs þegar kemur að ráðgjöf.
    Verkmenntaskólinn á Akureyri: Skólinn hefur einkum nýtt sér ráðgjöf Fjársýslunnar en myndi vilja nýta þjónustuleiðir Fjársýslunnar, svo sem er tengjast bókhaldi.