Ferill 376. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 597 — 376. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur um kynslóðaskipti og nýliðun meðal bænda.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Mun ríkisstjórnin grípa til frekari aðgerða til þess að auðvelda kynslóðaskipti á bújörðum í rekstri?
2. Mun ríkisstjórnin grípa til frekari aðgerða til þess að auðvelda nýliðun meðal bænda?
Fyrirspurninni er svarað í einu lagi þótt horfa megi á spurningarnar með mismunandi nálgun. Í kynslóðaskiptum á bújörðum felst nýliðun og í nýliðun meðal bænda felast oftast kynslóðaskipti um leið þótt það sé ekki endilega takmarkað við sömu fjölskyldu.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur meðal annars fram: „Gripið verður til aðgerða til að efla nýsköpun í landbúnaði, auðvelda nýliðun og kynslóðaskipti“. Í landbúnaðarstefnu sem Alþingi samþykkti í 2023 kemur jafnframt fram: „Við ráðstöfun opinbers fjár eða við aðrar aðgerðir til að efla stoðir landbúnaðar verði sérstaklega hugað að því að auðvelda kynslóðaskipti og nýliðun.“
Beinn stuðningur stjórnvalda til nýliðunar í landbúnað er núna tæpar 150 millj. kr. á ári sem felst í fjárfestingarstyrkjum. Gildistími núverandi fyrirkomulags stuðningskerfis landbúnaðarins rennur út í árslok 2026 og vinna er hafin við að undirbúa það sem tekur við. Í apríl 2025 efndu atvinnuvegaráðherra og Bændasamtök Íslands til sameiginlegrar bændafundaferðar þar sem meðal annars var kallað eftir sjónarmiðum bænda um framtíðarfyrirkomulag stuðnings við landbúnað. Áhyggjur komu fram af stöðu nýliðunar og kynslóðaskipta í landbúnaði á mörgum fundanna. Í ljósi þess, gildandi landbúnaðarstefnu og áherslna ríkisstjórnarinnar er horft til þess að málefnið verði áberandi í áframhaldandi samtölum við bændur sem framundan eru á næstu mánuðum og við mótun stuðningskerfis til framtíðar. Á þessu stigi liggja þó ekki fyrir beinar tillögur að aðgerðum en unnið verður að mótun þeirra í samráði við hagsmunaaðila.