Ferill 325. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 598  —  325. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Snorra Mássyni um kostnað vegna jafnréttismála og kynjafræði.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver hefur verið árlegur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess frá árinu 2017 við þjónustu, ráðgjöf, stefnumótun og fræðslu sem útvistað hefur verið og tengist jafnréttismálum og kynjafræði? Svar óskast sundurliðað eftir viðtakendum greiðslna, tegund veittrar þjónustu og undirstofnunum sem í hlut eiga.

    Svar ráðuneytisins tekur mið af starfsemi matvælaráðuneytis sem var og hét en það starfaði frá 1. febrúar árið 2022 þar til atvinnuvegaráðuneytið tók til starfa 15. mars sl. Undir matvælaráðuneytið heyrðu Hafrannsóknastofnun, Matvælastofnun og Fiskistofa, ásamt Landi og skógi (áður Landgræðslan og Skógræktin). Matvælaráðuneytið fór með aðgerð 17, um hinsegin sjávarútveg og landbúnað, í aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022– 2025, sjá eftirfarandi töflu yfir kostnað. Vegna kostnaðar við framkvæmd könnunar Maskínu fékk ráðuneytið úthlutaðan styrk úr framkvæmdasjóði hinsegin málefna. Allur kostnaður sem hlaust af verkefninu rúmaðist innan úthlutaðrar styrkfjárhæðar.
    Rétt er að nefna tvær athugasemdir varðandi svör stofnana ráðuneytisins og skráningu í yfirlitstöflu:
     1.      Land og skógur.
    Land og skógur hefur ekki greitt kostnað vegna jafnlaunavottunar þar sem ekki hefur unnist tími til að samræma verklagsreglur eftir sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar.
     2.      Matís.
    Um er að ræða opinbert hlutafélag sem heyrir undir ráðuneytið. Kostnaður vegna úttektar og innleiðingar vegna jafnlaunavottunar á umbeðnu tímabili var samtals 3.349.186 kr. m/vsk. Nánar tiltekið er kostnaðurinn við þjónustu vegna úttektar iCert ehf. samtals 1.950.950 kr. m/vsk og kostnaður vegna ráðgjafar frá Attentus – mannauði og ráðgjöf ehf. samtals 1.398.236 kr. Kostnaðurinn er ekki tiltekinn í eftirfarandi töflu yfir undirstofnanir.
    Svar við fyrirspurninni má sjá í eftirfarandi töflu sundurliðað eftir árlegum kostnaði ráðuneytisins og undirstofnana þess frá árinu 2017 við þjónustu, ráðgjöf, stefnumótun og fræðslu sem útvistað hefur verið og tengist jafnréttismálum og kynjafræði. Svarið er sundurliðað eftir viðtakendum greiðslna, tegund veittrar þjónustu og undirstofnunum sem í hlut eiga.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.