Ferill 201. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 600 — 201. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Ingvari Þóroddssyni um við fyrirspurn frá Ingvari Þóroddssyni um kostnað við gerð og þróun upplýsingatæknilausna.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og stofnana sem heyra undir það verið frá árinu 2018 við gerð og þróun upplýsingatæknilausna, þ.e. upplýsingakerfa, gagnagrunna, staðlaðs skrifstofuhugbúnaðar og annarra stafrænna innviða sem nýtast í almennum rekstri ríkisaðila? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti, stofnunum og árum.
Í svarinu er aðeins litið til kostnaðar við hugbúnaðarþróunarverkefni sem snúa að smíði og viðhaldi upplýsingatæknilausna í ráðuneytinu og stofnunum þess. Matvælaráðuneytið var stofnað 1. febrúar árið 2022 og því eru árin 2022 (allt árið), 2023 og 2024 með í þessu yfirliti. Stofnunin Land og skógur hóf starfsemi árið 2024 við sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar.
Matvælaráðuneytið, aðalskrifstofa.
| 2022 | 2023 | 2024 | |
| 54490 Önnur sérfræðiþjónusta | 0 | 0 | 0 |
| 54500 Rekstrarsamningar – sérfræðiþjónusta | 0 | 0 | 0 |
| 54520 Hugbúnaðargerð | 563.732 | 179.625 | 251.505 |
| 54521 Hugbúnaðargerð, án VSK | 0 | 100.965 | 753.997 |
| Launakostnaður vegna hugbúnaðargerðar (lva) | 0 | 0 | 0 |
Gerð og þróun upplýsingatæknilausna er bókað á bókhaldslykil 54490: Önnur sérfræðiþjónusta. Laun fyrir sömu útgjöld eru bókuð á launategundalykla. Haldið er utan um kostnað við þennan þátt í upplýsingatækni á viðkomandi verknúmerum fyrir hugbúnaðarþróun/ tækniskuld hjá stofnuninni. Gengið er út frá því í svarinu að átt sé við þann kostnað sem fylgir eigin gerð og þróun upplýsingatæknilausna. Þannig er t.d. ekki tekinn með kostnaður við aðkeyptan vélbúnað sem vissulega er á hverjum tíma hluti af þróun stafrænna innviða. Metinn er kostnaðurinn sem hér er lýst og hann nær því yfir forritunarvinnu við sérhæfðan rannsóknahugbúnað sem notaður er í starfsemi stofnunarinnar og gagnagrunna.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fiskistofa .
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Matvælastofnun .
Hafrannsóknastofnun .
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Gerð og þróun upplýsingatæknilausna er bókað á bókhaldslykil 54490: Önnur sérfræðiþjónusta. Laun fyrir sömu útgjöld eru bókuð á launategundalykla. Haldið er utan um kostnað við þennan þátt í upplýsingatækni á viðkomandi verknúmerum fyrir hugbúnaðarþróun/tækniskuld hjá stofnuninni. Gengið er út frá því í svarinu að átt sé við þann kostnað sem fylgir eigin gerð og þróun upplýsingatæknilausna. Þannig er t.d. ekki tekinn með kostnaður við aðkeyptan vélbúnað sem vissulega er á hverjum tíma hluti af þróun stafrænna innviða. Metinn er kostnaðurinn sem hér er lýst og hann nær því yfir forritunarvinnu við sérhæfðan rannsóknarhugbúnað sem notaður er í starfsemi stofnunarinnar og gagnagrunna.
Land og skógur.
| 2024 | |
| 54490 Önnur sérfræðiþjónusta | 0 |
| 54500 Rekstrarsamningar – sérfræðiþjónusta | 0 |
| 54520 Hugbúnaðargerð | 4.460.881 |
| 54521 Hugbúnaðargerð, án VSK | 0 |
| Launakostnaður vegna hugbúnaðargerðar | 0 |