Ferill 375. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 603 — 375. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur um einföldun byggingarreglugerðar og aðgerðir á húsnæðismarkaði.
1. Er unnið að því í ráðuneytinu að einfalda byggingarreglugerð til þess að auka framboð á fjölbreyttu húsnæði?
Unnið er að endurskoðun byggingarreglugerðar þar sem markmiðið er m.a. einföldun regluverks og aukið framboð fjölbreytts húsnæðis. Ráðherra skipaði nýlega stýrihóp um endurskoðun byggingarreglugerðar en hópnum er m.a. ætlað að vinna tillögur um gagngerar breytingar á regluverkinu með áherslu á að einfalda umgjörð um byggingariðnað í því skyni að lækka byggingarkostnað og leggja grunn að stöðugleika á húsnæðismarkaði. Þá mun hópurinn einnig vinna að breyttu fyrirkomulagi byggingareftirlits til að auka neytendavernd og draga úr byggingargöllum.
2. Til hvaða aðgerða hyggst ríkisstjórnin grípa til þess að fólk komist inn á húsnæðismarkaðinn?
Unnið er að aðgerðum í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, til að mynda sértækum aðgerðum til að fjölga íbúðum hratt og kerfisbreytingum sem miða að jafnvægi á húsnæðismarkaði. Einnig hefur ráðherra skipað sérstakan aðgerðahóp um húsnæðismál en í hópnum sitja fulltrúar stjórnarflokkanna, félags- og húsnæðismálaráðuneytis og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Hlutverk aðgerðahópsins er einkum að kortleggja áskoranir í húsnæðismálum og leggja fram tillögur að aðgerðum. Markmiðið er að landsmenn búi við húsnæðisöryggi og jafnrétti í húsnæðismálum og að skapa jafnvægi á húsnæðismarkaði. Þá er einnig unnið að nánara samstarfi ríkis og sveitarfélaga vegna íbúðauppbyggingar.
Helstu stjórntæki stjórnvalda til að fjölga íbúðum með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði eru hlutdeildarlán vegna fyrstu íbúðarkaupa og stofnframlög vegna almennra íbúða. Fjárheimildir vegna hlutdeildarlána eru 4 milljarðar kr. í ár og 7,336 milljarðar kr. í stofnframlög vegna almennra íbúða. Aðrar lánaheimildir Húsnæðissjóðs nema 16 milljörðum kr. til viðbótar við hlutdeildarlán.