Ferill 346. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 604 — 346. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um herþjónustu íslenskra ríkisborgara.
1. Hversu margir íslenskir ríkisborgarar hafa sótt herþjálfun á árunum 2010–2025? Óskað er eftir að fram komi árlegur fjöldi og ríki sem herþjálfun fór fram í.
Utanríkisráðuneytið hefur ekki upplýsingar um fjölda íslenskra ríkisborgara sem hafa sótt herþjálfun erlendis, ráðuneytið býr einungis yfir upplýsingum um fjölda íslenskra ríkisborgara sem hafa sótt um skólavist í norskum herskóla. Íslenskir ríkisborgarar hafa samkvæmt samningi frá 1995 rétt til að sækja um skólavist við herskóla í Noregi. Ferlið er á þann veg að umsækjendur senda öll umsóknargögn á utanríkisráðuneytið, ráðuneytinu er gefinn kostur til að gera athugasemdir um umsóknina og áframsendir svo umsóknina til norska sendiráðsins á Íslandi. Öll samskipti sem fara fram eftir það eru á milli norska herskólans og umsækjanda beint og er ráðuneytið ekki upplýst um það hvort umsækjandi fái skólavist.
2. Hversu margir íslenskir ríkisborgarar hafa sinnt herþjónustu á virkum átakasvæðum á árunum 2010–2025? Óskað er eftir að fram komi árlegur fjöldi, ríki sem herþjónustu var sinnt fyrir og átakasvæði.
Utanríkisráðuneytið hefur ekki upplýsingar um íslenska ríkisborgara sem sinna eða hafa sinnt herþjónustu á virkum átakasvæðum.