Ferill 323. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 605  —  323. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Snorra Mássyni kostnað vegna jafnréttismála og kynjafræði.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver hefur verið árlegur kostnaður ráðuneytisins frá árinu 2017 við þjónustu, ráðgjöf, stefnumótun og fræðslu sem útvistað hefur verið og tengist jafnréttismálum og kynjafræði? Svar óskast sundurliðað eftir viðtakendum greiðslna og tegund veittrar þjónustu.

    Kostnaður ráðuneytisins við þjónustu, ráðgjöf, stefnumótun og fræðslu sem útvistað hefur verið og tengist jafnréttismálum og kynjafræði er ekki sundurgreindur með þeim hætti í bókhaldi ráðuneytisins sem fyrirspurnin gerir ráð fyrir.
    Áætla má þennan kostnað með því að gera grein fyrir kostnaði sem fallið hefur til þegar ráðuneytið hefur greitt fyrir aðkeypta þjónustu og skýring á kostnaði í bókhaldi ber með sér að hann tengist jafnréttismálum og kynjafræði, t.d. með lykilorðum á borð við „jafnrétti“, „equality“, „kyn“ og „gender“. Kostnaður er færður til bókar samkvæmt tegundalykli Fjársýslunnar, en þar er m.a. að finna sérstaka lykla fyrir aðkeypta þjónustu „sérfræðinga sem lokið hafa háskólaprófi eða sambærilegu langskólanámi og eru verktakar en ekki launþegar“. Í þeim tilvikum sem gerð er grein fyrir að aftan er um að ræða þjónustu sem færð hefur verið til bókar sem „önnur sérfræðiþjónusta“ (tegundir 54490 og 54491). Sundurliðun þessa kostnaðar er í meðfylgjandi töflu.

Ár Viðtakandi greiðslu Tegund veittrar þjónustu Fjárhæð
2017 Ásdís Bjarnadóttir Ráðgjöf 160.000
Samtals 2017 160.000
2018 Capacent ehf. Erindi 150.000
2018 Háskóli Íslands Ráðgjöf 1.290.323
Samtals 2018 1.440.323
2019 Capacent ehf. Könnun 684.250
2019 Finnborg Salome Steinþórsdóttir Erindi 50.000
Samtals 2019 734.250
2020 Ólöf ríka ehf. Ráðgjöf 2.243.850
2020 Ríkiskaup Ráðgjöf 398.797
2020 UN Women Ísland Ráðgjöf 700.000
2020 Z. Chisiza Ráðgjöf 2.602.283
2020 Alan Greig Ráðgjöf 647.800
Samtals 2020 6.592.730
2021 Ásdís Ólafsdóttir Ráðgjöf 600.000
2021 Háskóli Íslands Ráðgjöf 820.000
2021 UN Women Ísland Ráðgjöf 800.000
2021 Alan Greig Ráðgjöf 762.780
Samtals 2021 2.982.780
2022 Ásdís Ólafsdóttir Ráðgjöf 1.170.000
2022 Háskóli Íslands Ráðgjöf 3.280.000
Samtals 2022 4.450.000
2023 Ásdís Ólafsdóttir Ráðgjöf 422.270
2023 Equimundo: Center for Masculinities and Social Justice Erindi 523.547
Samtals 2023 945.817
2024 Sítrus Studio ehf. Hönnun og umbrot 231.000
2024 Völundur Óskarsson Túlkun 21.000
Samtals 2024 252.000

Áætlað er að þrjár vinnustundir hafi farið í að útbúa þetta svar.