Ferill 433. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 607  —  433. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um aðgerðaáætlun vegna hækkandi sjávarstöðu.

Frá Ragnhildi Jónsdóttur.


     1.      Liggur fyrir aðgerðaáætlun hjá Vegagerðinni og fjárveiting til þess neyðarverkefnis sem viðgerð og efling sjóvarna er í ljósi hækkandi sjávarstöðu og vonskuveðra sem hafa haft miklar skemmdir í för með sér?
     2.      Hvenær er von á að slík áætlun verði kynnt og hvaða fjármagn er áætlað til verkefnisins?
     3.      Verður komið til móts við sveitarfélög þar sem sjóvarnir Vegagerðarinnar hafa ekki komið í veg fyrir skemmdir og tjón orðið á innviðum sem falla ekki undir bótaskyldu Náttúruhamfaratryggingar Íslands?


Skriflegt svar óskast.