Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 612, 156. löggjafarþing 148. mál: þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu (heiti stofnunar).
Lög nr. 31 13. júní 2025.
Þingskjal 612, 156. löggjafarþing 148. mál: þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu (heiti stofnunar).
Lög nr. 31 13. júní 2025.
Lög um breytingu á lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008 (heiti stofnunar).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 1. gr. laganna:- Í stað orðanna „þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir“ í 1. málsl. kemur: stofnun sem þjónustar.
- Á eftir 1. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Heiti stofnunarinnar skal vera Sjónstöðin.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. a laganna:- Í stað orðanna „Þjónustu- og þekkingarmiðstöð“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: Sjónstöðin.
- Í stað orðsins „Miðstöðin“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: Stofnunin.
- Í stað orðsins „miðstöðvarinnar“ í 3. mgr. kemur: stofnunarinnar.
3. gr.
Heiti laganna verður: Lög um Sjónstöðina.4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.5. gr.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:- Lög um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021: Í stað tilvísunarinnar „laga um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu“ í 2. mgr. 1. gr. laganna kemur: laga um Sjónstöðina.
- Lög um Barna- og fjölskyldustofu, nr. 87/2021:
- Í stað tilvísunarinnar „laga um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu“ í 2. mgr. 1. gr. laganna kemur: laga um Sjónstöðina.
- Í stað orðanna „Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu“ í 1. málsl. 3. mgr. 3. gr. laganna kemur: Sjónstöðina.
- Bókasafnalög, nr. 150/2012:
- Í stað orðanna „Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu“ í 3. málsl. 4. mgr. 15. gr. laganna kemur: Sjónstöðinni.
- Í stað orðanna „Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu“ í 2. málsl. 1. mgr. 17. gr. laganna kemur: Sjónstöðinni.
- Lög um Samskiptastöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, nr. 129/1990: Í stað orðanna „Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu“ í 2. mgr. 2. gr. a laganna kemur: Sjónstöðinni.
Samþykkt á Alþingi 2. júní 2025.