Ferill 434. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 615 — 434. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um tilkynningarskylda aðila.
Frá Bergþóri Ólasyni.
1. Teljast fleiri til tilkynningarskyldra aðila hér á landi skv. 17. tölul. 3. gr. laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, en teljast til slíkra aðila samkvæmt ákvæðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849? Ef svo er, hvaða rök standa því að baki?
2. Eru dæmi þess að með skilgreiningum á tilkynningarskyldum aðilum hér á landi hafi verið vikið frá skilgreiningum slíkra aðila samkvæmt ákvæðum tilskipunarinnar þannig að hér á landi falli stærri hluti starfsemi aðilanna undir skilgreiningarnar en samkvæmt ákvæðum tilskipunarinnar? Ef svo er, hvaða rök standa því að baki, hver eru þessi dæmi og um hvaða tilkynningarskylda aðila er að ræða?
Skriflegt svar óskast.