Ferill 436. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 617  —  436. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um starfsstöðvar heilsugæslu og stöðugildi lækna.

Frá Ólafi Adolfssyni.


     1.      Hversu margir íbúar búa á starfssvæði hverrar starfsstöðvar heilsugæslu á landsbyggðinni?
     2.      Hversu marga íbúa gerir mönnunarlíkan ráð fyrir að hvert stöðugildi læknis þjónusti, skipt eftir starfsstöðvum heilsugæslu?
     3.      Hversu margir íbúar liggja að baki hverju stöðugildi læknis á starfsstöðvum heilsugæslu á landsbyggðinni, skipt eftir starfsstöðvum?
     4.      Hvaða starfsstöð heilsugæslu tilheyrir hvert og eitt sveitarfélag á landinu?
     5.      Við hvaða fjölda íbúa í þéttbýli og nærliggjandi byggðum er miðað þegar tekin er ákvörðun um að veita þeim íbúum ekki heilbrigðisþjónustu í heimabyggð?


Skriflegt svar óskast.