Ferill 437. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 618 — 437. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um sölu dýralyfja.
Frá Ólafi Adolfssyni.
1. Hvernig hefur ráðuneytið og Lyfjastofnun túlkað orðin „teljandi áhrif á fjárhagslega afkomu“ í 108. gr. lyfjalaga, nr. 100/2020?
2. Eru einhver viðmið, hvort sem eru prósentuhlutföll eða fjárhæðir, um hvenær aðkoma lækna, þ.m.t. dýralækna, að lyfsölufyrirtækjum telst brot á ákvæðinu?
3. Hefur ákvæðinu verið beitt í eftirliti með starfi dýralækna eða verið notað til leiðbeiningar?
4. Hversu margir starfandi dýralæknar höfðu lyfsöluleyfi á ári hverju árin 2019–2024 og hversu margir þeirra störfuðu á höfuðborgarsvæðinu?
5. Hver var heildarsala dýralækna á lyfjum á ári hverju árin 2019–2024 í krónum talið, annars vegar á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar á landsvísu?
6. Hver var heildarsala dýralækna á dýralyfjum (í ATC-flokki Q) á ári hverju árin 2019– 2024, annars vegar á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar á landsvísu?
7. Hver var heildarsala dýralækna á lyfjum í öðrum ATC-flokkum en Q, þ.e. á mannalyfjum sem notuð eru fyrir dýr, á ári hverju árin 2019–2024?
8. Hversu stóran hluta af heildarsölu lyfseðilsskyldra dýralyfja á ári hverju árin 2019–2024 áttu lyfjabúðir annars vegar og dýralæknar með lyfsöluleyfi hins vegar?
Skriflegt svar óskast.