Ferill 438. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.

Þingskjal 619  —  438. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um íþrótta- og tómstundastarf barna.

Frá Vilhjálmi Árnasyni.


     1.      Hefur verið unnin stefna um þátttöku barna hælisleitenda og flóttafólks í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi?
     2.      Eru gerðar sérstakar ráðstafanir í samningum ríkisins og sveitarfélaga til að tryggja börnum í viðkvæmri félagslegri stöðu aðgengi að íþrótta- og tómstundastarfi?
     3.      Er til skoðunar að efla þátttöku barna innflytjenda í íþrótta- og tómstundastarfi sem hluta af aðlögun þeirra að íslensku samfélagi?


Skriflegt svar óskast.