Ferill 288. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 622 — 288. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um málefni aldraðra (ábyrgðarskipting á uppbyggingu hjúkrunarheimila).
Frá meiri hluta velferðarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, Snæfellsbæ og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Nefndinni bárust þrjár umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, og lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999. Frumvarpinu er ætlað að festa í lög breytta ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga hvað varðar fjármögnun vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila.
Umfjöllun nefndarinnar.
Með frumvarpinu er lagt til að 15% greiðsluþátttaka sveitarfélaga í kostnaði við byggingu og búnað hjúkrunarheimila falli niður og færist alfarið til ríkisins. Mun ríkið þá framvegis bera ábyrgð á því að afla húsnæðis undir þá starfsemi sem tilgreind er í 1. gr. frumvarpsins. Með þeim breytingum sem lagðar eru til verður vikið frá fyrirkomulagi 1. mgr. 32. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, þ.e. að gerð sé krafa um að sveitarfélög taki þátt í byggingu hjúkrunarheimila sem nemur að lágmarki 15% af stofnkostnaði. Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. sömu laga ber sveitarfélögum að láta ríkissjóði í té lóðir undir hjúkrunarheimili að kostnaðarlausu og án greiðslu gatnagerðargjalda og lóðarleigu. Með frumvarpinu er auk þess lagt til að sveitarfélögum verði heimilt að innheimta gatnagerðargjöld af lóðum undir hjúkrunarheimili.
Með 1. mgr. 2. gr. frumvarpsins er lagt til að samhliða breytingum á ábyrgðarskiptingu vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila skuli afskrifa og yfirfæra eignarhlut sveitarfélaga í fasteignum hjúkrunarheimila til ríkisins sem muni alfarið annast og kosta viðhald og endurbætur á viðkomandi fasteign. Yfirfærsla á eignarhlut sveitarfélaga skv. 1. mgr. nær aðeins til hjúkrunarheimila sem eru í rekstri og sameiginlegri eigu ríkis og sveitarfélaga og skal henni lokið eigi síðar en 1. janúar 2026, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.
Nefndinni barst umsögn frá Snæfellsbæ um málið þar sem m.a. kemur fram að ekki sé skýrt tekið fram í frumvarpinu um útfærslu þar sem sveitarfélög eiga stærri eignarhlut en 15%. Í skýringum við 2. gr. frumvarpsins kemur fram að ganga skuli frá yfirfærslu einstakra eigna eigi síðar en 1. janúar 2026, sem felur í sér að aukinn tími gefst til að ganga endanlega frá afsali og öðru því tengdu vegna þeirra eignarhluta sem færast til ríkisins. Gert sé ráð fyrir því að stýrihópur með fulltrúum ríkis og sveitarfélaga fái það hlutverk að fara nánar yfir hvaða eignarhlutir sveitarfélaga í hjúkrunarheimilum færist yfir í samræmi við ákvæðið. Meiri hlutinn bendir á að í þeirri vinnu er gengið út frá því að þar sem sameiginlegt eignarhald er til staðar muni það færast yfir til ríkisins að einfalda verka- og ábyrgðarskiptingu. Sérstaklega þarf að fara yfir vafamál sem kunna að vera uppi á einstökum stöðum sem taka mið af því hvernig þjónusta hefur verið byggð upp á hverjum stað fyrir sig. Verður í þeirri vinnu m.a. horft til þess hvort hjúkrunarheimili sé í sameiginlegri eigu og rekstri. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að huga sérstaklega að framangreindu.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Alþingi, 2. júní 2025.
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, form. |
Jónína Björk Óskarsdóttir, frsm. |
Jón Gnarr. | |
| Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. | Eydís Ásbjörnsdóttir. | ||