Ferill 439. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 623  —  439. mál.




Fyrirspurn


til atvinnuvegaráðherra um nám og öryggismál í ferðaþjónustu.

Frá Höllu Hrund Logadóttur.


     1.      Telur ráðherra þörf fyrir öflugt verklegt og fræðilegt nám í ferðaþjónustu og fjallaleiðsögn til að tryggja öryggi ferðamanna og stuðla þannig að sjálfbærni greinarinnar til lengri tíma?
     2.      Hefur ráðherra lagt mat á áhrif áforma mennta- og barnamálaráðuneytisins um að bjóða ekki upp á nám í fjallaleiðsögn við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu næsta haust í ljósi niðurstöðu ráðuneytisstjórahóps um jöklaferðir, í kjölfar banaslyss á Breiðamerkurjökli, og í samhengi við stöðu öryggismála í ferðaþjónustu almennt?
     3.      Hefur ráðherra unnið að því að tryggja að áfram verði boðið upp á nám í fjallaleiðsögn í samvinnu við mennta- og barnamálaráðherra og aðra ráðherra sem fara með skyld málefnasvið, svo sem menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, dómsmálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra, í ljósi mikilvægis námsins fyrir öryggi og orðspor ferðaþjónustu hér á landi?


Skriflegt svar óskast.