Ferill 440. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 624 — 440. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um nám í fjallaleiðsögn.
Frá Höllu Hrund Logadóttur.
1. Hefur ráðherra látið leggja mat á áhrif þess að bjóða ekki upp á nám í fjallaleiðsögn, m.a. í ljósi markmiða ferðamálastefnu til ársins 2030 um eflingu náms í ferðaþjónustu og að teknu tilliti til áherslu stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022–2036 á blómlegar byggðir í öllum landshlutum?
2. Hyggst ráðherra tryggja fjármögnun faglegs náms í fjallaleiðsögn í ljósi niðurstöðu skýrslu ráðuneytisstjórahóps um jöklaferðir, í kjölfar banaslyss á Breiðamerkurjökli, í samvinnu við atvinnuvegaráðherra og aðra hlutaðeigandi ráðherra?
3. Er ráðuneytið reiðubúið að semja um framlengingu á undanþágu fyrir ákveðinn nemendafjölda í fjallaleiðsögunámi undir merkjum Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu eða Háskólaseturs Vestfjarða samhliða því að nýir tekjustofnar námsins verði þróaðir, í stað þess að knýja á um stofnun einkaskóla?
Skriflegt svar óskast.