Ferill 354. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 626  —  354. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um milliúttektir og endurskoðun á ferli jafnlaunavottunar.


     1.      Hver er afstaða ráðherra til álits umboðsmanns Alþingis í máli nr. 12716/2024, frá 16. júlí 2024, um svokallaðar milliúttektir vegna jafnlaunavottunar?
    Bréf umboðsmanns Alþingis sem vísað er til varðar kvörtun yfir svari forsætisráðuneytisins við fyrirspurn um skyldu fyrirtækis til að greiða kostnað við svokallaða millivottun vegna jafnlaunavottunar, sbr. lög nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Niðurstaða umboðsmanns í málinu var sú að hann taldi ekki tilefni til að halda athugun sinni áfram að svo búnu og málið því látið niður falla, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga um umboðsmann Alþingis, nr. 85/1997. Í bréfi sínu vísar umboðsmaður m.a. til þess að forsætisráðuneytið tæki a.m.k. að hluta undir athugasemdir kvartanda og ráðuneytið ráðgerði að hefja endurskoðun á vottunarferli samkvæmt lögum nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Þegar umrætt álit var gefið út voru jafnréttismál vistuð í forsætisráðuneytinu en frá 15. mars 2025 hafa jafnréttismál heyrt undir dómsmálaráðuneytið.
    Eftir að ráðherra tók við málaflokknum hófst þegar markviss vinna við að undirbúa endurskoðun gildandi laga og reglna um jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana, m.a. með hliðsjón af þeim sjónarmiðum sem koma fram í fyrrnefndu bréfi umboðsmanns Alþingis. Við endurskoðunina verður litið til þess hvernig megi einfalda ferlið, gera það skilvirkara, og draga úr kostnaði við innleiðingu jafnlaunakerfa fyrir fyrirtæki og stofnanir.

     2.      Telur ráðherra að lagaskilyrði séu uppfyllt til þess að krefja fyrirtæki og stofnanir um slíkar milliúttektir?
    Ráðherra tekur undir þau sjónarmið forsætisráðuneytisins sem reifuð eru í svörum ráðuneytisins til kvartanda, dags. 4. apríl 2024, og til umboðsmanns Alþingis, dags. 14. júní 2024, hvað varðar túlkun laga og reglna sem varða jafnlaunavottunarferlið. Vinna fer nú fram í dómsmálaráðuneytinu við að endurskoða framangreind lög og reglur og skoðað hvernig megi einfalda ferlið, gera það skilvirkara og draga úr kostnaði sem því fylgir.

     3.      Hvað líður endurskoðun á ferli jafnlaunavottunar sem ráðuneytið boðaði og umboðsmaður Alþingis byggði niðurstöðu sína á um að ljúka málinu?
    Vinna er hafin í dómsmálaráðuneytinu við að einfalda gildandi lög og reglur um jafnlaunakerfi með það að markmiði að gera ferlið skilvirkara og draga úr kostnaði við framkvæmd þess. Horft verður til reynslu af kerfinu og þeirrar gagnrýni og ábendinga sem komið hafa fram við framkvæmd þess. Verður m.a. horft til tillagna starfshóps forsætisráðherra um hagræðingu í ríkisrekstri sem skilað var til ríkisstjórnar 4. mars sl. um að létt verði á jafnlaunavottun og stærðarmörk hækkuð.
    Áformaskjal um frumvarp til laga um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og lögum um stjórnsýslu jafnréttismála nr. 151/2020 (jafnlaunakerfi) var birt í samráðsgátt stjórnvalda 2. júní sl. þar sem hagsmunaaðilum og öðrum gefst færi á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. 1 Stefnt er að því að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögunum á vorþingi 2026.

     4.      Hver er staða fyrirtækja og stofnana sem þegar hafa sótt um jafnlaunavottun í ljósi þess að ráðherra hefur boðað frumvarp sem á að létta á skilyrðum fyrir vottuninni? Mun ráðherra beita sér fyrir frestun á viðurlögum vegna ferlisins á meðan beðið er eftir fyrirhuguðum breytingum?
    Þar til frumvarp til laga um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, og lögum um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020 (jafnlaunakerfi), sbr. svar við 3. tölul., hefur verið lagt fram á þingi, og verið samþykkt eiga gildandi lög við og ber fyrirtækjum og stofnunum að fara að þeim. Þá má benda á að viðurlögum hefur ekki verið beitt hingað til og Jafnréttisstofa hefur gengið langt í að veita fyrirtækjum og stofnunum svigrúm til úrbóta enda hafa langflest fyrirtæki og stofnanir litið á það jákvæðum augum að uppfylla lagaskylduna um að koma sér upp jafnlaunakerfi hvort sem það er með jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfestingu.

1     island.is/samradsgatt/mal/3980