Ferill 146. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 629 — 146. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um sorgarleyfi, nr. 77/2022 (aukin réttindi foreldra).
(Eftir 2. umræðu, 3. júní.)
1. gr.
a. Á eftir orðinu „barnsmissis“ í 1. og 2. málsl. kemur: eða makamissis.
b. Á eftir orðinu „systkin“ í 1. málsl. kemur: eða börn.
2. gr.
a. Við 3. tölul. bætist: eða makamissi.
b. Á eftir 4. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Makamissir: Þegar hjúskapar- eða sambúðarmaki foreldris andast.
c. Í stað tilvísunarinnar „a–f-lið“ í 2. málsl. 5. tölul. kemur: a–g-lið.
d. Á eftir orðinu „barnsmissis“ í 6. og 7. tölul. kemur: eða makamissis.
3. gr.
a. Á eftir orðinu „barnsmissi“ í 1. og 2. mgr. kemur: eða makamissi.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. stofnast ekki réttur til sorgarleyfis vegna barnsmissis eða makamissis hafi foreldri framið brot sem varðar refsingu samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga og leitt hefur til fyrrnefnds missis.
c. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Réttur foreldris til sorgarleyfis vegna barnsmissis eða makamissis.
4. gr.
a. Í stað orðsins ,,þrjá“ í 1. málsl. kemur: sex.
b. Í stað orðsins ,,tvo“ í 2. málsl. kemur: þrjá.
5. gr.
6. gr.
a. Við 2. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: sá tími sem foreldri fær greiðslur í sorgarleyfi á grundvelli laga þessara eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldrið sótt um þær.
b. Við 2. málsl. 3. mgr. bætist: eða hvort foreldri hefði átt rétt á greiðslum á grundvelli laga þessara, sbr. g-lið 2. mgr.
7. gr.
a. Á eftir orðinu „barnsmissi“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: makamissi.
b. Í stað tilvísunarinnar „a–f-lið“ í 2. málsl. 1. mgr. og 2. og 4.–7. málsl. 2. mgr. kemur: a–g-lið.
c. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Við andvanafæðingu eða barnsmissi, þar sem barnið er yngra en 24 mánaða, er foreldri heimilt að óska eftir að við útreikning á mánaðarlegri greiðslu verði tekið mið af tekjum viðkomandi á viðmiðunartímabili skv. 1.–3. mgr. 23. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, eftir því sem við á.
8. gr.
a. Á eftir orðinu „barnsmissi“ í 1. og 2. mgr. kemur: eða makamissi.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. stofnast ekki réttur til sorgarstyrks vegna barnsmissis eða makamissis hafi foreldri framið brot sem varðar refsingu samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga og leitt hefur til fyrrnefnds missis.
9. gr.
a. Á eftir orðinu „barnsmissi“ tvívegis í 1. málsl. 1. mgr. og í 2. mgr. kemur: eða makamissi.
b. Í stað orðanna „sem barnsmissir á sér stað“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: sem foreldri verður fyrir barnsmissi eða makamissi.
10. gr.
a. Í stað orðsins ,,þrjá“ í 1. málsl. kemur: sex.
b. Í stað orðsins ,,tvo“ í 2. málsl. kemur: þrjá.
11. gr.
12. gr.
Hafi foreldri sem verður fyrir barnsmissi eða makamissi framið brot sem varðar refsingu samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga, og leitt hefur til fyrrnefnds missis, ber foreldrinu að endurgreiða þá fjárhæð sem greidd hefur verið á grundvelli laga þessara.
13. gr.
a. Á undan 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Foreldri sem nýtur greiðslna á grundvelli laga þessara getur ekki á sama tímabili nýtt rétt til greiðslna vegna annars tilviks sem veitir rétt til greiðslna á grundvelli laganna.
b. Í stað orðanna „í sorgarleyfi“ í 1.–7. mgr. og 1.–3. málsl. 8. mgr. kemur: á grundvelli laga þessara.
c. Eftirfarandi breytingar verða á 9. mgr.:
1. Á eftir orðinu „barnsmissis“ kemur: sama makamissis.
2. Í stað orðanna „í sorgarleyfi skv. IV. kafla“ kemur: á grundvelli laga þessara.
14. gr.
15. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 7. og 18. gr. stofnast ekki réttur til greiðslna samkvæmt lögum þessum hafi foreldri framið brot sem varðar refsingu samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga og leitt hefur til barnsmissis.
Hafi foreldri framið brot sem varðar refsingu samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga og leitt hefur til barnsmissis ber foreldrinu að endurgreiða þá fjárhæð sem greidd hefur verið á grundvelli laga þessara.
Ákvæði þetta gildir til og með 31. desember 2025.
16. gr.
Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast 1. gr., a-, b- og d-liður 2. gr., 3. gr., 5. gr., a-liður 7. gr., 8. gr., 9. gr., 11. gr., 12. gr. og 1. tölul. c-liðar 13. gr. gildi 1. janúar 2026.
17. gr.
1. Lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006: Á eftir 3. mgr. 51. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Hver sá sem nýtur greiðslna samkvæmt lögum um sorgarleyfi telst ekki tryggður á sama tímabili samkvæmt lögum þessum.
2. Lög um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga, nr. 104/2024: B-liður 35. gr. laganna orðast svo: Á eftir 7. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Foreldri sem fær greiddan virknistyrk á grundvelli laga um vinnumarkaðsaðgerðir getur ekki á sama tímabili nýtt rétt sinn til greiðslna á grundvelli laga þessara.