Ferill 442. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 630 — 442. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um rekstrarumhverfi íþróttafélaga.
Frá Rósu Guðbjartsdóttur.
1. Hefur ráðherra átt samtal við fulltrúa íþróttahreyfingarinnar um rekstrarumhverfi íþróttafélaga, þ.m.t. um skattafyrirkomulag og önnur álitaefni sem komu fram á fjármálaráðstefnu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands 14. nóvember sl., í ljósi þess að hreyfingin hefur kallað eftir slíku samtali?
2. Er til skoðunar að einfalda regluverk um íþróttafélög, einkum er varðar virðisaukaskattsskyldu, til að draga úr álagi vegna reksturs og styrkja starfsemi þeirra?
Skriflegt svar óskast.