Ferill 381. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 635 — 381. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um fjárhagsaðstoð til erlendra ríkisborgara.
Ákvæði 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, kveður á um skyldu ríkissjóðs til að endurgreiða sveitarfélagi fyrir veitta aðstoð vegna erlendra ríkisborgara, annars vegar í þeim tilvikum þegar aðstoð er veitt erlendum ríkisborgurum sem ekki eiga lögheimili í landinu, sbr. a-lið 2. mgr. ákvæðisins, og hins vegar þegar aðstoð er veitt erlendum ríkisborgurum skv. 12. og 13. gr. laganna sem hafa átt lögheimili í landinu skemur en tvö ár, sbr. b-lið 2. mgr. ákvæðisins. Þar sem uppgjöri vegna ársins 2024 er ekki að fullu lokið má gera ráð fyrir að upplýsingar vegna þess árs geti tekið einhverjum breytingum við lok uppgjörs.
1. Hver var fjárhæð endurgreiðslna úr ríkissjóði árin 2019–2024 til sveitarfélaga sem veittu fjárhagsaðstoð skv. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga erlendum ríkisborgurum sem ekki áttu lögheimili á Íslandi eða höfðu átt lögheimili hér á landi skemur en tvö ár?
Tafla 1: Fjárhæð endurgreiðslna úr ríkissjóði til sveitarfélaga vegna 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga fyrir árin 2019–2024.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið fyrir árin 2019–2022 og Vinnumálastofnun fyrir árin 2023 og 2024.
2. Hvernig skiptist upphæðin á milli sveitarfélaga?
Tafla 2: Kostnaðarhlutfall sveitarfélaga vegna a-liðar 2. mgr. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga fyrir árin 2019–2024.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið fyrir árin 2019–2022 og Vinnumálastofnun fyrir árin 2023 og 2024.
Tafla 3: Kostnaðarhlutfall sveitarfélaga vegna b-liðar 2. mgr. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga fyrir árin 2019–2024.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið fyrir árin 2019–2022 og Vinnumálastofnun fyrir árin 2023 og 2024.
3. Hvernig hefur samráði félags- og húsnæðismálaráðuneytis við dvalarsveitarfélög verið háttað og hvernig veitir ráðuneytið samþykki fyrir veittri fjárhagsaðstoð?
Vinnumálastofnun annast afgreiðslu umsókna frá sveitarfélögum um endurgreiðslu til sveitarfélaga á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Ákvarðanir Vinnumálastofnunar, þar á meðal ákvarðanir um synjun um endurgreiðslu til sveitarfélaga á grundvelli ákvæðisins, sæta endurskoðun ráðuneytisins í samræmi við meginreglu 26. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, þar sem ekki hefur verið kveðið á um annað í öðrum lögum.
4. Hvernig er gengið úr skugga um, áður en fjárhagsaðstoð er veitt, að leitast hafi verið eftir aðstoð frá heimalandi eins og lögin gera að skilyrði?
Í samræmi við 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, sbr. einnig 9. gr. reglna um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, í sérstökum tilvikum, við erlenda ríkisborgara og endurgreiðslur fjárhagsaðstoðar úr ríkissjóði, nr. 520/2021, er það félagsþjónusta viðkomandi sveitarfélags sem metur þörf viðkomandi einstaklings fyrir aðstoð hverju sinni, þ.m.t. hvort viðkomandi eigi ekki rétt á eða kost á aðstoð annars staðar frá, svo sem frá ríkisfangslandi viðkomandi eða því landi þar sem viðkomandi er með skráð lögheimili. Í umsókn sveitarfélags til Vinnumálastofnunar um endurgreiðslu á veittri aðstoð á grundvelli fyrrnefndrar 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga staðfestir viðkomandi sveitarfélag að framangreindra upplýsinga hafi verið aflað.
5. Hvernig skiptast útgjöldin eftir ríkisfangi viðtakenda?
Hvorki félags- og húsnæðismálaráðuneytið né Vinnumálastofnun búa yfir upplýsingum fyrir árin 2019–2022 í tengslum við skiptingu endurgreiðslna úr ríkissjóði til sveitarfélaga, á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, eftir ríkisfangi þeirra einstaklinga sem í hlut eiga.
Árið 2023 voru endurgreiðslur úr ríkissjóði til sveitarfélaga, á grundvelli a-liðar 2. mgr. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, vegna einstaklinga sem höfðu 31 ríkisfang og árið 2024 voru ríkisföngin 36.
Tafla 4: Kostnaðarhlutfall eftir ríkisfangi, þar sem hlutfall ríkisfangs var yfir 4% af heildinni, vegna a-liðar 2. mgr. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga fyrir árin 2023 og 2024.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Vinnumálastofnun.
Árið 2023 voru endurgreiðslur úr ríkissjóði til sveitarfélaga, á grundvelli b-liðar 2. mgr. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, vegna einstaklinga sem höfðu 75 ríkisföng og árið 2024 voru ríkisföngin 74. Í töflu 5 má sjá hlutfall ríkisfanga sem voru yfir 3,50% af heildinni.
Tafla 5: Kostnaðarhlutfall eftir ríkisfangi, þar sem hlutfall ríkisfangs var yfir 3,50% af heildinni, vegna b-liðar 2. mgr. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga fyrir árin 2023 og 2024.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Vinnumálastofnun.
6. Hyggst ráðherra setja nýjar reglur um aðstoð samkvæmt ákvæðum laganna?
Ráðherra hefur í hyggju að endurskoða endurgreiðslu ríkissjóðs til sveitarfélaga á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir að vinnan fari fram í samráði við sveitarfélögin.