Ferill 163. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 636  —  163. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um hjúkrunarheimili.


     1.      Hvernig sér ráðherra fyrir sér að öflun húsnæðis fyrir hjúkrunarheimili verði háttað á kjörtímabilinu?
    Uppbygging hjúkrunarheimila er hluti af þjóðarátaki í umönnun eldra fólks, líkt og fram kemur í 14. lið stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar, og er meðal forgangsverkefna hennar að rétta við núverandi ástand. Málefni aldraðra, þar á meðal uppbygging hjúkrunarheimila, færðust yfir til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins þann 15. mars þegar forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 5/2025, tók gildi. Á þeim tímapunkti biðu 700 einstaklingar eftir hjúkrunarrými en þar af voru tæplega 200 í svokölluðum biðrýmum, sem er tímabundið úrræði á spítala eða heilbrigðisstofnun, þar til hægt er að koma einstaklingum í viðeigandi úrræði.
    Til að bregðast við þessari stöðu hefur ráðherra þegar skrifað undir húsaleigusamning við fasteignafélagið Reiti um Nauthólsveg 50, sem breyta á í hjúkrunarheimili með 87 rýmum. Þá er hafin uppbygging hjúkrunarheimilis við Ás í Hveragerði á vegum Grundarheimilanna. Að auki hefur ráðherra gert samkomulag við annars vegar Akureyrarbæ og hins vegar Sveitarfélagið Norðurþing um að sveitarfélögin afhendi ríkinu lóðir, í samræmi við samkomulag ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila. Næsta skref varðandi verkefnin á Akureyri og Húsavík er að auglýsa eftir aðilum til að byggja og eiga húsnæðið undir hjúkrunarheimilin. Ríkið mun síðan leigja húsnæðið með leigusamningi til næstu 20–30 ára.
    Ýmis verkefni eru því nú þegar komin af stað við uppbyggingu hjúkrunarheimila á vegum félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og fleiri eru í pípunum sem kynnt verða nánar eftir því sem fram vindur.
    Samhliða hefur hafist vinna innan ráðuneytisins við mótun aðferðafræði við uppbyggingu hjúkrunarheimila þar sem möguleikar verða kannaðir á aukinni aðkomu langtímafjárfesta, eins og lífeyrissjóða, og óhagnaðardrifinna félaga.

     2.      Mun ráðherra fylgja eftir ákvörðun heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra frá árinu 2024 um að taka upp nýtt og skilvirkara fyrirkomulag við öflun húsnæðis fyrir hjúkrunarheimili? Ef svo er, hvenær mun ráðherra leggja fram frumvarp í samræmi við ákvörðunina?
    Umrædd ákvörðun byggist á tillögum sem settar voru fram í skýrslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins sem ber heitið Breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila. Í skýrslunni er m.a. lagt til að horfið verði frá fyrra fyrirkomulagi sem fól í sér sameiginlegt eignarhald ríkis og sveitarfélaga á hjúkrunarheimilum í tilteknum hlutföllum (85/15). Í stað þess verði farin sú leið að fela fasteignafélögum og öðrum sérhæfðum aðilum að byggja hjúkrunarheimili gegn leigusamningi við ríkið. Samhliða þessum breytingum verði samstarfi ríkis og sveitarfélaga við uppbyggingu hjúkrunarheimila hætt og ríkissjóður beri framvegis einn ábyrgð á fjármögnun og rekstri rýma undir hjúkrunarþjónustu. Þann 19. mars 2025 var skrifað undir samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila í samræmi við það sem að framan greinir. Frumvarp um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um málefni aldraðra liggur nú fyrir Alþingi en með því verður efni samkomulagsins fært í lög. Jafnframt er lagt til í skýrslunni að fjármögnun hjúkrunarheimila byggist á skýrri aðgreiningu uppbyggingar hjúkrunarheimila annars vegar og hjúkrunarþjónustu hins vegar. Með fyrrgreindum forsetaúrskurði nr. 5/2025 urðu þessar breytingar að veruleika.
    Á þessum tímapunkti eru ekki hugmyndir um að lögfesta frekari tillögur úr skýrslunni.