Ferill 401. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 638  —  401. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Gísla Stefánssyni um sjúkraþyrlu á Suðurlandi.


     1.      Telur ráðherra þörf á að styrkja sjúkraflutninga á Suðurlandi með sjúkraþyrlu?
    Útköllum og verkefnum tengd sjúkraflutningum á Suðurlandi hefur fjölgað nokkuð á undanförnum árum og þá sérstaklega á starfssvæði Selfoss og Hafnar í Hornafirði. Til að bregðast við þeirri þróun hefur verið gripið til ýmissa ráðstafana, þar á meðal með bráðaviðbragðsbíl staðsettum í Skaftafelli sem einnig nær til ferðamannastraums í kringum Jökulsárlón yfir sumartímann. Þá hefur fjárhagsleg styrking verið veitt til að standa straum af mönnuðum viðbótarsjúkrabíl sem dekkar uppsveitir Árnessýslu sem er fjölmennt sumarhúsa- og ferðamannasvæði.
    Ekki hefur tekist að tryggja fjármögnun sjúkraþyrlu á suðvesturhluta landsins. Horft er til þess, í samvinnu við önnur ráðuneyti, að efla viðbragðsgetu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar í þágu landsmanna allra. Slík styrking myndi án efa jafnframt nýtast sjúkraflutningum á Suðurlandi.

     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að fylgt verði eftir samþykkt ríkisstjórnarinnar frá árinu 2019 um að ráðast í tilraunaverkefni um notkun sjúkraþyrlu til að styrkja sjúkraflutninga og veita þannig bráðveikum og slösuðum sérhæfða þjónustu með sem skjótustum hætti?
    Árið 2019 lagði meiri hluti fjárlaganefndar til í nefndaráliti sínu að ráðist yrði í tilraunaverkefni um notkun sjúkraþyrlu. Tillagan hefur verið lögð fram í fjármálaáætlun síðustu ár en ekki verið samþykkt. Ráðherra hyggst halda áfram að beita sér fyrir framgangi málsins en telur mikilvægt að tryggja að sjúkraflug með þyrlu verði eflt á öllu landinu og að núverandi þjónustuframboð og samlegðaráhrif verði höfð að leiðarljósi. Þá telur ráðherra skynsamlegt að aðeins einn þjónustuaðili sinni sjúkraflugi með þyrlum á Íslandi í ljósi fjölda útkalla.