Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 639 — 406. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um útsvar og útsvarstekjur sveitarfélaga.
1. Hvaða sveitarfélög leggja á útsvar sem er undir hámarki 1. mgr. 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995?
Hámarksálagning útsvars fyrir árið 2025 er skv. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, 14,97%. Skv. c-lið 1. mgr. 8. gr. a sömu laga fær Jöfnunarsjóður hlutdeild í útsvarstekjum sveitarfélaga af álagningarstofni útsvars sem nemur 0,77% til jöfnunar vegna grunnskóla og 1,44% til jöfnunar vegna málefna fatlaðs fólks. Af álagningarstofni útsvars rennur því beint 2,21% inn í Jöfnunarsjóð, óháð útsvarsprósentu.
Á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur fram að af þeim 62 sveitarfélögum sem starfrækt eru leggja 12 sveitarfélög á útsvar sem nemur lægri útsvarsprósentu en lögbundið hámark (14,97%) kveður á um. Sveitarfélögin eru eftirfarandi:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hverjar eru útsvarstekjur sveitarfélaga sem leggja ekki á hámarksútsvar og hverjar væru væntar útsvarstekjur þeirra ef þau legðu á hámarksútsvar? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
Eftirfarandi tafla sýnir hvernig útsvarstekjur A-hluta þeirra sveitarfélaga sem fullnýttu ekki heimild sína til álagningar útsvars voru samkvæmt ársreikningi 2024 og hverjar væntar útsvarstekjur þeirra væru ef þau hefðu lagt á hámarksútsvar. Í töflunni er búið að leiðrétta fyrir hlutdeild Jöfnunarsjóðs í útsvarsstofni sveitarfélaga.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
3. Hvaða áhrif hefur álagt útsvar á greiðslur sveitarfélaga til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga?
Samkvæmt 12. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, skal við útreikning framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga miða við það útsvar sem sveitarfélag hefði fengið ef það nýtti tekjustofna sína að fullu.
Þetta þýðir að hvort sem sveitarfélag innheimtir hámarksútsvar eða ekki er gert ráð fyrir í útreikningum að það hafi lagt á hámarksútsvar. Álagt álagningarhlutfall útsvars hefur ekki áhrif á útreikning framlaga úr sjóðnum.
Þess ber þó að geta að þau sveitarfélög sem fullnýta ekki heimild sína til álagningar útsvars eiga ekki rétt á tekjujöfnunarframlagi, sbr. 2. mgr. 12. gr. a laga nr. 4/1995.