Ferill 271. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 653  —  271. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, nr. 30/2023 (stefnumörkun).

Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá innviðaráðuneytinu, Byggðastofnun, Vegagerðinni, Skipulagsstofnun, Húnabyggð, Húnaþingi vestra og Þingeyjarsveit.
    Nefndinni bárust sjö umsagnir auk minnisblaðs frá innviðaráðuneytinu og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, m.a. vegna breyttrar verkaskiptingar innan Stjórnarráðsins.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Í greinargerð frumvarpsins, í umfjöllun um tilefni og nauðsyn lagasetningarinnar, kemur fram að þær breytingar sem urðu á ráðuneytum og verkaskiptingu þeirra 15. mars 2025 kalli á breytingu á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála. Til innviðaráðuneytis hafi færst fjarskiptamál en húsnæðis- og skipulagsmál flust til félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Eftir þessar breytingar séu á málefnasviði innviðaráðuneytisins samgöngur, fjarskipti, byggðamál og sveitarstjórnarmál.
    Meiri hlutinn tekur undir framangreint sjónarmið en telur rétt að vekja athygli innviðaráðuneytisins á að í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands frá 14. mars 2025 kemur hugtakið „innviðir“ aðeins einu sinni fyrir sem málefni innviðaráðuneytis, þ.e. þegar vísað er til þess að meðal verkefna sé „öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða“ en hugtakið kemur aftur á móti nokkrum sinnum fyrir annars staðar undir öðrum ráðuneytum. Í frumvarpinu er sett fram þrengri skilgreining á innviðum en notuð hefur verið í löggjöf og í forsetaúrskurðinum. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að huga að framangreindu.

Breytingartillaga.
    Í greinargerð frumvarpsins, í umfjöllun um samráð, kemur m.a. fram að áform um frumvarpsgerðina hafi verið kynnt í innra samráði innan Stjórnarráðsins en ekki hafi verið talið tilefni til að kynna efni frumvarpsins í ytra samráði þar sem það varði innra skipulag við stefnumörkun innviðaráðuneytisins.
    Í umsögnum til nefndarinnar og fyrir nefndinni hefur verið bent á nauðsyn þess að eiga samtal við helstu hagsmunaaðila og meta kosti þess og galla að heimila ráðherra að sameina stefnur og aðgerðaáætlanir á málefnasviði innviðaráðuneytisins í eina samhæfða innviðastefnu en skv. 1. mgr. 3. gr. gildandi laga skal leggja fram sjálfstæða stefnu á hverju sviði fyrir sig.
    Í minnisblaði ráðuneytisins til nefndarinnar kemur m.a. fram að ekki standi til að draga úr umfangi þeirrar vönduðu vinnu og samráðs sem einkennt hefur undirbúning stefna og aðgerðaáætlana á sviði byggðamála, fjarskipta og samgangna hverrar um sig né draga úr gæðum eða mikilvægi stefnumörkunarinnar sjálfrar. Þvert á móti yrði unnið að því að tryggja að áætlanirnar gangi enn betur í takt og styðji hver við aðra.
    Meiri hlutinn telur frumvarpið að þessu leyti falla utan þess að varða innra skipulag og stefnumörkun innviðaráðuneytisins. Meiri hlutinn leggur því til þá breytingu á 3. gr. frumvarpsins að 1. mgr. 3. gr. laganna verði að meginefni til færð til fyrra horfs, þ.e. að ráðherra verði ekki að sinni veitt heimild til þess að sameina stefnur og aðgerðaáætlanir á málefnasviði innviðaráðuneytisins. Í ljósi 7. gr. frumvarpsins um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, vegna flutnings húsnæðismála úr innviðaráðuneytinu í félags- og húsnæðismálaráðuneytið þarf að fella brott vísun til húsnæðisstefnu. Vegna þessa leggur meiri hlutinn til að í stað þess að vísa til heita þeirra stefna sem ráðherra leggur fram á sínu málefnasviði þá verði almenn vísun til stefna á hverju sviði fyrir sig.
    Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að eiga samráð um framangreint við helstu hagsmunaaðila sem eftir atvikum getur leitt af sér framlagningu nýs frumvarps.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Efnismálsgrein 3. gr. orðist svo:
    Ráðherra leggur fram á Alþingi á hverju kjörtímabili tillögur til þingsályktana um stefnur til fimmtán ára á hverju sviði fyrir sig.

    Halla Hrund Logadóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 5. júní 2025.

Guðbrandur Einarsson,
form., frsm.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir. Dagur B. Eggertsson.
Jónína Björk Óskarsdóttir. Sigurður Helgi Pálmason.