Ferill 461. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 658  —  461. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um sýklalyf.

Frá Ólafi Adolfssyni.


     1.      Er yfirlit um sýklalyfjanotkun manna og dýra skráð í rafrænan gagnagrunn? Ef svo er, hver ber ábyrgð á söfnun og miðlun gagna um ávísun og afhendingu sýklalyfja til manna og dýra?
     2.      Hvernig fer skráning fram á sýklalyfjum sem gefin eru sjúklingum innan heilbrigðisstofnana, svo sem sjúkrahúsa, hjúkrunarheimila og heilsugæslustöðva, þar sem lyfið er ekki leyst út í lyfjabúð?
     3.      Telur ráðherra, með hliðsjón af aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn sýklalyfjaónæmi, að fyrirliggjandi skráningar- og upplýsingakerfi nái utan um alla notkun sýklalyfja, bæði dýra og manna, á fullnægjandi hátt? Ef svo er ekki, hvaða úrbóta er þörf?


Skriflegt svar óskast.