Ferill 341. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 663  —  341. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Sigurði Inga Jóhannssyni um lífeyrissjóðakerfið.


     1.      Hversu margir lífeyrissjóðir starfa nú á Íslandi?
    Á Íslandi eru starfandi 20 lífeyrissjóðir sem taka á móti iðgjaldi sem ætlað er að veita lágmarkstryggingavernd. Ýmsir lífeyrissjóðir eru deildaskiptir og eru deildirnar 68 talsins. Af þeim eru 13 lífeyrissjóðir sem bjóða upp á valfrjálsan séreignarsparnað í 43 deildum. Loks eru starfandi fimm innlendir vörsluaðilar séreignarsparnaðar með samtals 31 deild, auk þriggja erlendra vátryggingafélaga sem bjóða upp á séreignarsparnað í formi lífeyristrygginga.
    Lífeyrissjóðum hefur fækkað verulega á undanförnum áratugum. Fjöldi þeirra er nú um fimmtungur þess sem var árið 1980. Þeim fækkaði síðast um einn á árinu 2024 þegar Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar sameinaðist Brú lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga. Sameiningarviðræður standa yfir á milli Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga og Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar og einnig á milli Lífsverks lífeyrissjóðs og Almenna lífeyrissjóðsins.

     2.      Hver var heildarrekstrarkostnaður lífeyrissjóðanna á síðustu fimm árum, sundurliðað eftir árum?
    Ársreikningar lífeyrissjóða eru gerðir upp samkvæmt reglum nr. 335/2015, um ársreikninga lífeyrissjóða. Fjallað er um rekstrarkostnað í 11. gr. reglnanna, þar sem segir að sá kostnaður samanstandi af skrifstofu- og stjórnunarkostnaði. Fjárfestingargjöld falla ekki þar undir heldur eru þau dregin frá ávöxtun sjóðanna, sem er í samræmi við aðferðafræði OECD. Rekstrarkostnaður nær því aðeins til hluta þess kostnaðar sem fellur til vegna starfsemi lífeyrissjóða. Þannig falla þóknanir til fjármálafyrirtækja vegna umsýslu og stjórnunar á fjárfestingum undir fjárfestingargjöld. Þetta felur í sér, að öðru óbreyttu, að rekstrarkostnaður lífeyrissjóðs sem útvistar eignastýringu er lægri en ella, þar sem sá kostnaður fellur undir fjárfestingargjöld.
    Rekstrarkostnaður lífeyrissjóða að viðbættum fjárfestingargjöldum á síðustu fimm árum var eftirfarandi:
    2020: 26,5 ma.kr.
    2021: 32,7 ma.kr.
    2022: 34,1 ma.kr.
    2023: 40,3 ma.kr.
    2024: 44,9 ma.kr.
    Rekstrarkostnaður innlendra lífeyrissjóða, samtrygginga- og séreignardeilda þeirra, síðastliðin fimm ár, skv. 11. gr. reglna nr. 335/2015, var eftirfarandi:
    2020: 8,8 ma.kr.
    2021: 9,5 ma.kr.
    2022: 10,4 ma.kr.
    2023: 11,5 ma.kr.
    2024: 12,8 ma.kr.

     3.      Hvert er meðalhlutfall rekstrarkostnaðar af heildareignum sjóðanna fyrir síðasta heila reikningsár?
    Samkvæmt bráðabirgðatölum frá lífeyrissjóðum, um síðastliðin áramót, var heildareign lífeyrissjóða (vegna lágmarkstryggingaverndar og séreignarsparnaðar) 8.240,8 ma.kr. Meðaltal rekstrarkostnaðar skv. 11. gr. reglna nr. 335/2015 var því 0,15% af heildareignum.

     4.      Hefur ráðherra látið vinna mat á því hvort frekari sameining lífeyrissjóða gæti skilað aukinni hagkvæmni og lægri rekstrarkostnaði fyrir sjóðfélaga?
    Málefni lífeyrissjóða eru stöðugt til skoðunar í ráðuneytinu en ráðherra hefur þó ekki látið gera sérstakt mat á hagkvæmni frekari sameininga.

     5.      Er ráðherra reiðubúinn að beita sér fyrir lagabreytingu um lágmarksstærð lífeyrissjóða með það að markmiði að sjóðirnir verði ekki fleiri en fimm á landsvísu?
    Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. hefur lífeyrissjóðum fækkað verulega á undanförnum áratugum. Á árinu 1980 voru þeir 96 en eru nú orðnir 20 og frekari sameiningar eru til skoðunar. Að mörgu er að hyggja í þessum efnum og mikilvægt er að tryggilega sé gætt að hagsmunum sjóðfélaga þegar sameiningar eiga sér stað. Stjórnendur lífeyrissjóða eru meðvitaðir um þróunina undanfarin ár, mikilvægi þess að rekstrarkostnaði sé haldið í lágmarki og að stærðarhagkvæmni geti skipt máli í þeim efnum. Augljóst tilefni til þess að ráðist verði í lagabreytingar til að hraða því ferli virðist ekki til staðar.