Ferill 123. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.

Þingskjal 668  —  123. mál.
Leiðréttur texti.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (ArnaJ, PawB, RÞI, SER, SSB).


1.      Við 2. gr.
                  a.      Í stað orðanna „vanskráningargjaldi og sektum“ í 3. mgr. komi: vanskráningargjalds og sekta.
                  b.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Þrátt fyrir 1.–4. mgr. hvílir gjaldskylda vegna eftirvagns, sem ekki er búinn akstursmæli, á þeim sem gjaldskyldur er af ökutæki sem dregur eftirvagninn hverju sinni óháð eignarhaldi eða umráðum á eftirvagninum.
2.      Við 3. og 4. tölul. 1. mgr. 3. gr. bætist: sbr. þó 5. tölul. 4. gr.
3.      Við 4. gr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Dráttarvél í ökutækjaflokki T1 eða T2 og eftirvagn hennar. Það skilyrði skal vera uppfyllt að dráttarvél og eftirvagn hennar séu til nota í landbúnaði hjá gjaldskyldum aðila sem skráður er á landbúnaðarskrá hjá ríkisskattstjóra vegna skila á virðisaukaskatti eða í starfsemi sem fellur undir flokk 1 í atvinnuvegagreinaflokkun Hagstofu Íslands, annarri en þjónustu við búrekstur.
4.      Við 6. gr.
                  a.      Í stað orðanna „ákvæði reglugerðar um stærð og þyngd ökutækja, 155/2007“ í 3. málsl. 2. mgr. komi: viðauka við lög þessi.
                  b.      4. málsl. 2. mgr. falli brott.
                  c.      Á eftir orðunum „1. mgr. 3. gr.“ í 3. mgr. komi: og eru 400 kg að eigin þyngd eða minna.
5.      Við 7. gr.
                  a.      Orðin „sbr. þó 2. mgr.“ í 1. málsl. 1. mgr. falli brott.
                  b.      Á eftir orðunum „gjaldskyldum aðila“ í 2. málsl. 1. mgr. komi: á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður eða.
                  c.      Orðin „eða eftir atvikum öðrum álestraraðila við sérstakan álestur á stöðu akstursmælis og ávallt við reglubundna skoðun ökutækis“ í 2. málsl. 1. mgr. falli brott.
                  d.      3. málsl. 1. mgr. orðist svo: Skráning skal ávallt eiga sér stað við reglubundna skoðun ökutækis.
                  e.      2. mgr. orðist svo:
                      Þrátt fyrir 1. mgr. skal að lágmarki á sex mánaða fresti skrá stöðu akstursmælis, þ.m.t. ökurita gjaldskylds ökutækis skv. 1. mgr. 3. gr. sem er 10.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd. Að minnsta kosti einu sinni á hverju almanaksári skal skráning vera framkvæmd af álestraraðila, sem er faggilt skoðunarstofa ökutækja, t.d. við árlega aðalskoðun ökutækis, tollyfirvöld við inn- og útflutning eða Vegagerðin. Þá skal skrá stöðu akstursmælis gjaldskylds ökutækis í eigu eða umráðum ökutækjaleigu að lágmarki á sex mánaða fresti, þar af einu sinni á hverju almanaksári hjá faggiltri skoðunarstofu ef ökutækið er 10.000 kg að leyfðri heildarþyngd eða þyngra.
                  f.      Á eftir 2. mgr. komi ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Skrá skal stöðu akstursmælis ökutækis sem dregur eftirvagn, sem ekki er búinn akstursmæli, fyrir bæði ökutækið og eftirvagninn, sbr. 5. mgr. 2. gr.
                  g.      Við 1. málsl. 1. tölul. 3. mgr. bætist: og þegar það er skráð aftur í umferð.
                  h.      Í stað orðsins „umráðamanni“ í 3. tölul. 3. mgr. komi: skráningu umráðamanns.
                  i.      Í stað orðsins „kílómetrastöðu“ í 5. mgr. komi: stöðu.
                  j.      Í stað orðanna „á ökutækjum sem falla“ í 6. mgr. komi: ökutækis sem fellur.
                  k.      Í stað „1.–6. mgr.“ í 7. mgr. komi: 1.–7. mgr.
                  l.      8. mgr. orðist svo:
                      Tilgreina skal þá mælieiningu sem akstursmælir sýnir og skráning tekur mið af.
6.      Við 8. gr.
                  a.      Í stað „3. mgr.“ í 3. málsl. 1. mgr. komi: 4. mgr. þeirrar greinar.
                  b.      Á eftir orðunum „er í eigu“ í 2. tölul. 2. mgr. komi: eða umráðum.
7.      Við 2. mgr. 9. gr.
                  a.      Í stað „1.–3. mgr.“ í 1. málsl. komi: 1.–3. og 5. mgr.
                  b.      Við 1. málsl. bætist: og fjárhæð kílómetragjalds skv. 6. gr.
8.      Við 10. gr.
                  a.      Í stað orðanna „skv. 7. og 10. mgr.“ í 2. mgr. komi: skv. 8. og 11. mgr.
                  b.      Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Verði breyting á fjárhæð kílómetragjalds á því tímabili sem lagt er til grundvallar álagningu skal miða við meðalakstur á tímabilinu, fjölda daga og fjárhæð gjalds fyrir og eftir gildistöku breytingar.
9.      Við 11. gr.
                  a.      Á eftir orðunum „létts bifhjóls“ í 2. mgr. komi: sem er 400 kg að eigin þyngd eða minna.
                  b.      Í stað „3.350“, „5.025“ og „5.860“ í 2. mgr. komi: 8.000; 12.000; og: 14.000.
                  c.      4. mgr. flytjist og verði 5. mgr. og orðist svo:
                      Hafi skráning á stöðu akstursmælis við komu ökutækis til landsins skv. 2. málsl. 1. mgr. ekki farið fram skal gjaldskyldur aðili greiða kílómetragjald út frá eftirfarandi forsendum:
                  a.    Sé ökutæki minna en 10.000 kg að leyfðri heildarþyngd skal gjaldskyldur aðili greiða fast akstursgjald skv. 2. mgr. miðað við hvert hafið 10 daga tímabil ef ökutæki er 30 daga eða skemur hér á landi. Ef ökutækið er lengur en 30 daga hér á landi skal greiðsla miðuð við fast akstursgjald skv. 1. málsl. 2. mgr. og 300 kr. fyrir hvern hafinn dag eftir það.
                  b.    Sé ökutæki 10.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd skal ákvörðun ríkisskattstjóra um kílómetragjald miðuð við 200 km akstur á dag fyrstu 10 dagana, 100 km akstur á dag næstu 10 daga og 50 km akstur á dag eftir það. Tollyfirvöld skulu við brottför ökutækis ákvarða fjárhæð kílómetragjalds skv. 1. mgr. 6. gr. og innheimta gjaldið hjá gjaldskyldum aðila.
                  d.      5. mgr. flytjist og verði 4. mgr.
                  e.      6. mgr. orðist svo:
                      Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. skal skrá akstursmæli ökutækis, sem dregur eftirvagn sem ekki er búinn akstursmæli, fyrir bæði ökutækið og eftirvagninn, sbr. 5. mgr. 2. gr.
                  f.      7. mgr. falli brott.
                  g.      8. mgr. orðist svo:
                      Farmflytjandi skal skila upplýsingum um þau ökutæki sem fjallað er um í ákvæðinu til Skattsins á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.
10.      Í stað orðanna „þrír almanaksmánuðir“ í 2. mgr. 12. gr. komi: einn almanaksmánuður.
11.      Við 13. gr.
                  a.      Í stað orðsins „að“ í 2. málsl. 2. mgr. komi: þegar.
                  b.      Á undan orðinu „afskráningu“ í 2. málsl. 2. mgr. komi: við.
                  c.      Á eftir 2. mgr. komi ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Gjalddagi og eindagi á föstu akstursgjaldi skv. 2. mgr. 11. gr. og a-lið 5. mgr. 11. gr. vegna ökutækis sem er 30 daga eða skemur hér á landi er komudagur þess til landsins. Að öðru leyti er gjalddagi og eindagi ökutækis sem fellur undir 11. gr. brottfarardagur þess frá landinu.
                  d.      Í stað orðanna „skv. 1.–3. mgr.“ í 4. mgr. komi: skv. 1.–4. mgr.
                  e.      Á eftir orðunum „Beri eindaga“ í 5. mgr. komi: á þeim ökutækjum sem skráningarskyld eru hér á landi.
12.      2. mgr. 14. gr. falli brott.
13.      Við 16. gr.
                  a.      Í stað „3. mgr.“ í 1. mgr. komi: 3. tölul. 4. mgr.
                  b.      Í stað orðanna „breyttrar skráningar“ í 1. málsl. 2. mgr. komi: breyttri skráningu.
                  c.      Í stað orðanna „skráðum umráðamanni“ í 2. málsl. 2. mgr. komi: skráningu umráðamanns.
                  d.      Í stað orðsins „umráðamanni“ fimm sinnum í 3. mgr. og í 4. mgr. komi: skráningu umráðamanns.
14.      Við 1. mgr. 17. gr.
                  a.      Í stað „3. mgr.“ í 1. málsl. komi: 4. tölul. 4. mgr.
                  b.      Í stað orðsins „greiðslutímabil“ í 2. málsl. komi: greiðslutímabils.
15.      Við 18. gr.
                  a.      1.–3. mgr. orðist svo:
                      Gjaldskylt ökutæki skv. 3. gr. skal vera búið virkum akstursmæli til ákvörðunar kílómetragjalds. Með akstursmæli er átt við akstursmæli í mælaborði ökutækis. Undir hugtakið akstursmælir fellur einnig ökuriti eða eftir atvikum nafmælir í eftirvagni í tilviki þeirra ökutækja sem falla undir 2. mgr. 7. gr. og eru 10.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd.
                      Ríkisskattstjóri getur, ef sérstaklega stendur á, veitt undanþágu frá því að gjaldskylt ökutæki skv. 4. tölul. 1. mgr. 3. gr. sé útbúið akstursmæli, enda fari ákvörðun kílómetragjalds fram á annan jafn tryggan hátt.
                      Eigandi og umráðamaður ökutækis skv. 1. mgr. bera ábyrgð á að akstursmælir, eða eftir atvikum ökuriti eða nafmælir sem notaður er sem akstursmælir, telji rétt. Ef talning akstursmælis er röng eða engin skal ákvörðun um bráðabirgðagreiðslu og álagningu, þ.m.t. álagningu kílómetragjalds vegna óuppgerðra greiðslutímabila, taka mið af eftirfarandi forsendum:
                  a.    Sé ökutæki skráð hér á landi skal greiðsla taka mið af fyrri skráningu álestraraðila, þ.m.t. faggiltrar skoðunarstofu ökutækja á akstri ökutækis gjaldskylds aðila. Liggi upplýsingar um akstur ekki fyrir, eða ljóst er að upplýsingar eru rangar, skal ákvarða akstur skv. 2. mgr. 8. gr.
                  b.    Sé ökutæki skráð erlendis skal ákvörðun ríkisskattstjóra um kílómetragjald miðuð við b-lið 5. mgr. 11. gr.
                  b.      Orðið „og“ í 1. málsl. 4. mgr. falli brott.
                  c.      Í stað orðanna „umráðamaður þá svo fljótt sem honum er unnt tilkynna“ í 1. málsl. 4. mgr. komi: umráðamaður skv. 1. mgr. 3. gr. tilkynna svo fljótt sem honum er unnt.
                  d.      Á eftir orðinu „skv.“ í 2. málsl. 4. mgr. komi: a-lið.
                  e.      Við 1. málsl. 5. mgr. bætist: skv. 1. mgr. 3. gr.
16.      Í stað orðanna „fjallað er um í lögum þessum“ í 20. gr. komi: veitt geta upplýsingar við framkvæmd laga þessara.
17.      Við 21. gr.
                  a.      Á eftir orðunum „ákvörðun kílómetragjalds“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: þ.m.t. daggjalds og fasts akstursgjalds.
                  b.      Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ráðherra er heimilt að fela lögreglu eða Vegagerðinni framkvæmd tiltekinna þátta eftirlitsins með reglugerð.
                  c.      Á eftir 1. mgr. komi ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Heimilt er, sbr. 1. mgr., að stöðva ökutæki og gera þær athuganir á því sem taldar eru nauðsynlegar vegna greiðslu og álagningar kílómetragjalds, þ.m.t. að athuga þyngd ökutækis og virkni akstursmælis. Ökumanni er skylt að stöðva ökutæki sé þess óskað og heimila nauðsynlegar athuganir á forsendum til ákvörðunar kílómetragjalds.
                  d.      3. málsl. 3. mgr. falli brott.
                  e.      4. málsl. 3. mgr. orðist svo: Nemi gjaldbreyting 5.000 kr. eða lægri fjárhæð skal falla frá endurákvörðun.
18.      Við 22. gr.
                  a.      Á eftir orðunum „Álagning kílómetragjalds“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: þ.m.t. daggjalds, fasts akstursgjalds.
                  b.      2. málsl. 1. mgr. flytjist og verði 2. mgr.
                  c.      Í stað orðanna „skv. 1. mgr. og endurákvörðun skv. 21. gr.“ í 2. mgr. komi: skv. 2. mgr., endurákvörðun skv. 21. gr. og ákvörðun um sektir skv. 25. gr.
                  d.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Ákvörðun ríkisskattstjóra um bráðabirgðagreiðslu er endanleg á stjórnsýslustigi, sbr. þó 3. mgr. 9. gr.
19.      Við 25. gr.
                  a.      Á undan 1. mgr. komi ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Ef ökutæki er í umferð án þess að það sé búið akstursmæli, sbr. þó 2. mgr. 18. gr., eða ef akstursmælir telur ekki eða ef heildarþyngd ökutækis eða vagnlestar með farmi er umfram gjaldþyngd þess, sbr. 2. mgr. 6. gr., varðar það sektum allt að 500.000 kr.
                  b.      Í stað orðsins „skatts“ í 2. mgr. komi: gjalds.
                  c.      Í stað „1. mgr.“ í 4. mgr. komi: 2.–4. mgr.
                  d.      7. mgr. falli brott.
                  e.      Fyrirsögn greinarinnar orðist svo: Viðurlög.
20.      Á eftir 25. gr. komi ný grein, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Málsmeðferð og fyrning brota.

                      Skattrannsóknarstjóri leggur á sektir skv. 25. gr., sbr. 88. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, nema máli sé vísað til rannsóknar og dómsmeðferðar skv. 4. mgr. Við ákvörðun sekta skal hafa hliðsjón af eðli og umfangi brota. Skjóta má ákvörðun skattrannsóknarstjóra um sektir til yfirskattanefndar og kemur hann fram af hálfu hins opinbera fyrir nefndinni við meðferð málsins. Um meðferð mála hjá nefndinni fer eftir lögum um yfirskattanefnd, nr. 30/1992. Úrskurðir nefndarinnar eru fullnaðarúrskurðir á stjórnsýslustigi.
                      Sektir skv. 25. gr. geta að hámarki numið 100 millj. kr. Sektir skv. 1. mgr. 25. gr. skulu þó að hámarki nema 500.000 kr.
                      Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er ríkisskattstjóra heimilt að ljúka meðferð með ákvörðun stjórnvaldssektar við brotum er varða refsingu skv. 25. gr., ef brot varðar ekki hærri sekt en 5 millj. kr., enda hafi málinu ekki verið vísað til skattrannsóknarstjóra til meðferðar. Sé sekt skv. 1. málsl. greidd innan 14 daga frá ákvörðun hennar lækkar sektarfjárhæðin um 20 af hundraði. Sektarákvörðun ríkisskattstjóra er kæranleg til yfirskattanefndar innan þriggja mánaða frá póstlagningu ákvörðunar. Ríkisskattstjóri kemur fram af hálfu hins opinbera fyrir nefndinni vegna kæru á úrskurði hans.
                      Skattrannsóknarstjóri getur vísað máli til rannsóknar lögreglu af sjálfsdáðum.
                      Sektir fyrir brot gegn lögum þessum renna í ríkissjóð.
                      Vararefsing fylgir ekki sektarákvörðun ríkisskattstjóra. Um innheimtu sekta gilda sömu reglur og um innheimtu virðisaukaskatts samkvæmt lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
                      Sök samkvæmt ákvæðinu fyrnist á sex árum miðað við upphaf meðferðar máls á vegum ríkisskattstjóra, enda verði ekki óeðlilegar tafir á meðferð máls eða ákvörðun refsingar.
21.      Við 28. gr.
                  a.      Í stað dagsetningarinnar „1. júlí 2025“ fjórum sinnum í greininni komi: 1. október 2025.
                  b.      Í stað orðanna „skulu ákvæði til bráðabirgða I–IV“ í 3. mgr. komi: skulu 3. tölul. 30. gr. og ákvæði til bráðabirgða I–V.
                  c.      Í stað „29. gr.“ í 4. mgr. komi: 30. gr.
22.      Við 29. gr.
                  a.      Í stað dagsetningarinnar „1. júlí 2025“ í 1. efnismgr. b-liðar 2. tölul. komi: 1. október 2025.
                  b.      Í stað orðsins „Umhverfisstofnun“ í b-lið 1. efnismgr. b-liðar 2. tölul. og orðsins „Umhverfisstofnunar“ í 3. efnismgr. b-liðar 2. tölul. komi: Umhverfis- og orkustofnun; og: Umhverfis- og orkustofnunar.
                  c.      Í stað orðsins „Endurgreiða“ í 2. efnismgr. b-liðar 2. tölul. komi: Endurgreiðsla.
                  d.      Við bætist tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
                  3.      Lög um olíugjald og kílómetragjald, nr. 87/2004: Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                               Þrátt fyrir ákvæði 14. gr. skal greiðsla kílómetragjalds og sérstaks kílómetragjalds vegna aksturs frá álestri á stöðu ökumælis á álestrartímabilinu 1. júní til 15. júní 2025, til og með 30. september 2025, miðuð við áætlaðan meðalakstur á dag. Áætlaður meðalakstur á dag skal reiknaður út frá meðalakstri á dag milli skráningar á stöðu ökumælis á álestrartímabilinu 1. desember til 15. desember 2024 og 1. júní til 15. júní 2025. Gjalddagi kílómetragjalds og sérstaks kílómetragjalds er 1. október 2025 og eindagi 14 dögum síðar.
                  4.      Lög um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi, nr. 40/2013: 7. tölul. 2. gr. laganna orðast svo: Söluaðilar eldsneytis: Söluaðilar og dreifingaraðilar sem eru gjaldskyldir aðilar skv. 2. gr. laga um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009, til greiðslu kolefnisgjalds skv. 1. gr. sömu laga.
23.      Við ákvæði til bráðabirgða I.
                  a.      1. mgr. orðist svo:
                      Þrátt fyrr ákvæði 7. gr. skal rafræn skráning á stöðu akstursmælis gjaldskylds ökutækis eiga sér stað 20. október 2025 eða fyrr hvort sem skráningin er framkvæmd af gjaldskyldum aðila eða álestraraðila, skv. 1. eða 2. mgr. 7. gr., hafi hún ekki átt sér stað fyrir gildistöku laganna á yfirstandandi ári.
                  b.      Í stað dagsetningarinnar „1. október 2025“ í 3. mgr. komi: 1. janúar 2026.
                  c.      Í stað orðanna „þessari grein“ í 4. mgr. komi: þessu ákvæði.
24.      Við ákvæði til bráðabirgða II.
                  a.      Í stað dagsetningarinnar „1. ágúst 2025“ þrívegis í ákvæðinu komi: 1. nóvember 2025.
                  b.      Við 1. málsl. 3. mgr. bætist: þessa ákvæðis.
25.      Í stað dagsetningarinnar „1. júlí 2025“ í ákvæði til bráðabirgða III komi: 1. október 2025.
26.      Við ákvæði til bráðabirgða V.
                  a.      Í stað „3. gr.“ í 1. mgr. komi: 2. gr.
                  b.      Í stað dagsetningarinnar „30. júní 2025“ í 1. mgr. komi: 30. september 2025.
                  c.      Í stað dagsetningarinnar „25. júlí 2025“ í 1. mgr. komi: 25. október 2025.
                  d.      Í stað dagsetningarinnar „15. ágúst 2025“ í 2. mgr. og tvívegis í 3. mgr. komi: 15. nóvember 2025.
27.      Við ákvæði til bráðabirgða VI.
                  a.      Í stað dagsetningarinnar „1. júlí“ sex sinnum í 1. mgr. komi: 1. október.
                  b.      Í stað „20.000“ í 3. tölul. 1. mgr. komi: 20.001.
                  c.      Í stað dagsetningarinnar „31. desember 2025“ í 4. tölul. 1. mgr. komi: 31. desember 2026.
                  d.      Í stað ártalsins „2026“ í 4. tölul. 1. mgr. komi: 2027.
28.      Í stað orðanna „1. júlí til og með 31. desember 2025“ í ákvæði til bráðabirgða VII komi: 1. október til og með 31. desember 2026.
29.      Við bætist nýr viðauki, svohljóðandi:

Leyfileg heildarþyngd.

Leyfileg heildarþyngd:
Kg Lýsing ökutækis
1.1 Ökutæki sem hluti vagnlestar:
1.1.1 18.000 Tvíása tengivagn
1.1.2 24.000 Þríása tengivagn
1.2 44.000 Heildarþungi samtengdra ökutækja
1.2.1 Fimm- eða sex ása vagnlest sem er bifreið og tengivagn:
1.2.1.1 40.000 Tvíása bifreið með þríása tengivagni
1.2.1.2 40.000 Þríása bifreið með tvíása tengivagni
1.2.1.3 40.000 Þríása bifreið með þríása tengivagni
1.2.1.4 44.000 Þríása bifreið með þríása tengivagni sé drifás með tvöföldum hjólum og loftfjöðrum eða öðrum fjöðrunarbúnaði, viðurkenndum innan EES, sbr. viðauka II með tilskipun 96/53/EB, eða þar sem hver drifás er með fjórum hjólum og þungi hvers áss er ekki meiri en 9,5 tonn
1.2.1.5 44.000 Fjórása bifreið með tvíása tengivagni
1.2.2 Fimm- eða sexása vagnlest sem er bifreið og festivagn:
1.2.2.1 40.000 Tvíása bifreið með þríása festivagni
1.2.2.2 40.000 Þríása bifreið með tvíása festivagni
1.2.2.3 44.000 Þríása bifreið með tví- eða þríása festivagni þar sem vagnlest ber 40 feta ISO gám
1.2.2.4 40.000 Þríása bifreið með þríása festivagni og
1.2.2.5 44.000 sé drifás með tvöföldum hjólum og loftfjöðrum eða öðrum fjöðrunarbúnaði, viðurkenndum innan EES, sbr. viðauka II með tilskipun 96/53/EB, eða þar sem hver drifás er með fjórum hjólum og þyngd hvers áss er ekki meiri en 9,5 tonn
1.2.2.6 44.000 Fjórása bifreið með tvíása festivagni
1.2.3 36.000 Fjórása vagnlest sem er tvíása bifreið og tvíása tengivagn
1.2.4 Fjórása vagnlest sem er tvíása bifreið og tvíása festivagn, sé fjarlægðin milli ása festivagns:
1.2.4.1 36.000 1,3 m eða þar yfir, þó ekki yfir 1,8 m
1.2.4.2 36.000 yfir 1,8 m + 2 tonn þegar ákvæði um leyfilega heildarþyngd bifreiðar (18 tonn) og tvíása festivagns (20 tonn) eru virt og drifás er með tvöföldum hjólum og loftfjöðrum eða öðrum fjöðrunarbúnaði sem er viðurkenndur innan EES, sbr. viðauka II með tilskipun 96/53/EB
1.3 Bifreið:
1.3.1 18.000 Tvíása bifreið
1.3.2 25.000 Þríása bifreið
1.3.3 26.000 Þríása bifreið sé drifásinn með tvöföldum hjólum og loftfjöðrum eða öðrum fjöðrunarbúnaði, viðurkenndum innan EES, sbr. viðauka II með tilskipun 96/53/EB eða hver drifás sé með tvöföldum hjólum og þungi hvers áss er ekki meiri en 9,5 tonn
1.3.4 32.000 Fjórása bifreið með tveimur stýrisásum:
a. sé drifásinn með tvöföldum hjólum og loftfjöðrum eða öðrum fjöðrunarbúnaði, viðurkenndum innan EES, sbr. viðauka II með tilskipun 96/53/EB eða
b. sé hver drifás með tvöföldum hjólum og þungi hvers áss ekki meiri en 9,5 tonn
Aðrir eiginleikar ökutækis:
Heildarþyngd fjórása bifreiðar í tonnum má ekki fara yfir sexfalda fjarlægð milli fremsta og aftasta áss bifreiðar í metrum
1.4 28.000 Þríása liðvagn