Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 669, 156. löggjafarþing 97. mál: grunnskólar (námsmat).
Lög nr. 33 16. júní 2025.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 39. gr. skal skyldubundið samræmt námsmat í íslensku og stærðfræði koma til innleiðingar og framkvæmdar í öllum grunnskólum skólaárið 2025–2026. Ráðherra tryggir skólum fullnægjandi stuðning við innleiðingu og metur þörf fyrir svigrúm og útfærslur á fyrsta ári framkvæmdar.
Þingskjal 669, 156. löggjafarþing 97. mál: grunnskólar (námsmat).
Lög nr. 33 16. júní 2025.
Lög um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008(námsmat).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 4. gr. laganna:- Á eftir 1. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Þar á meðal eru upplýsingar um námsmat nemenda í grunnskólum.
- Við bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ráðherra birtir reglulega ópersónugreinanlegar upplýsingar um stöðu skólastarfs hér á landi. Honum er heimilt að fela Miðstöð menntunar og skólaþjónustu gagnavinnslu samkvæmt þessari grein.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 27. gr. laganna:- 1. og 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Námsmat fer fram í grunnskólum og er reglubundinn þáttur í skólastarfi og liður í að tryggja börnum viðeigandi kennslu og stuðning. Tilgangur námsmats er að veita heildstæða mynd af námslegri stöðu og framförum nemenda jafnt og þétt yfir skólagönguna, hvernig tekst að mæta markmiðum aðalnámskrár og veita upplýsingar um þau börn sem kunna að þurfa stuðning vegna framvindu í námi og þroska.
- Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 39. gr. laganna:- Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr.:
- Á eftir orðunum „stendur fyrir“ kemur: skyldubundnu.
- Í stað orðsins „könnunarpróf“ kemur: matstæki.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Tilgangur skyldubundins samræmds námsmats er að veita samanburðarhæfar upplýsingar um námsárangur og fá þar með mynd af stöðu einstakra nemenda, grunnskóla, sveitarfélaga og skólakerfisins í heild.
- 2. mgr. orðast svo:
- Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr.:
- Í stað orðanna „þreyta könnunarpróf“ kemur: undirgangast skyldubundið samræmt námsmat.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Skólastjóri skal skrá ástæður þess að veitt er undanþága frá skyldubundnu samræmdu námsmati.
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Eftirfarandi breytingar verða á 4. mgr.:
- Orðin „og prófa“ í 1. málsl. falla brott.
- Við 1. málsl. bætist: sbr. jafnframt 2. mgr. 27. gr.
- 2. málsl. orðast svo: Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats, þ.m.t. skyldubundins samræmds námsmats, þar á meðal um tíðni mats, í hvaða bekkjum nemendur skulu undirgangast samræmt námsmat á hverju stigi grunnskóla, námsgreinar sem samræmt námsmat nær til og undanþágur nemenda frá skyldubundnu samræmdu námsmati.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Skyldubundið samræmt námsmat.
4. gr.
Í stað orðanna „þreyta könnunarpróf“ í 3. málsl. 2. mgr. 46. gr. laganna kemur: undirgangast skyldubundið samræmt námsmat.5. gr.
Í stað orðanna „samræmdra könnunarprófa“ í 2. málsl. 1. mgr. 47. gr. a laganna kemur: samræmds námsmats.6. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 39. gr. skal skyldubundið samræmt námsmat í íslensku og stærðfræði koma til innleiðingar og framkvæmdar í öllum grunnskólum skólaárið 2025–2026. Ráðherra tryggir skólum fullnægjandi stuðning við innleiðingu og metur þörf fyrir svigrúm og útfærslur á fyrsta ári framkvæmdar.
7. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 6. júní 2025.