Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 671, 156. löggjafarþing 132. mál: landamæri o.fl. (farþegaupplýsingar fyrir lögreglu og tollyfirvöld).
Lög nr. 36 19. júní 2025.
I. KAFLI
Breyting á lögum um landamæri, nr. 136/2022.
II. KAFLI
Breyting á lögreglulögum, nr. 90/1996.
Lögreglu er heimil vinnsla og miðlun upplýsinga um farþega og áhöfn í samræmi við lög um landamæri og reglur sem settar eru á grundvelli þeirra.
III. KAFLI
Breyting á tollalögum, nr. 88/2005.
Fyrirtækjum sem annast flutning farþega og vöru til og frá landinu er skylt að afhenda farþegaupplýsingadeild lögreglu og tollyfirvalda upplýsingar um farþega og áhöfn. Sama skylda hvílir á stjórnendum, eigendum eða umráðamönnum fara sem ferðast til og frá landinu, þar á meðal einkaflugfara og seglskipa.
Tollyfirvöldum er heimil vinnsla og miðlun upplýsinga um farþega og áhöfn í samræmi við lög um landamæri og reglur sem settar eru á grundvelli þeirra.
Ráðherra kveður nánar á um umfang upplýsingaskyldunnar og afhendingu upplýsinga til farþegaupplýsingadeildar lögreglu og tollyfirvalda, þar á meðal um form og tímasetningu.
Þingskjal 671, 156. löggjafarþing 132. mál: landamæri o.fl. (farþegaupplýsingar fyrir lögreglu og tollyfirvöld).
Lög nr. 36 19. júní 2025.
Lög um breytingu á lögum um landamæri, lögreglulögum og tollalögum (farþegaupplýsingar fyrir lögreglu og tollyfirvöld).
1. gr.
Á eftir 16. tölul. 3. gr. laganna kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Upplýsingar um farþega og áhöfn: Upplýsingar sem finna má í farþegabókunargögnum og ferðaskilríkjum farþega og áhafnar.2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:- Í stað orðsins „lögreglu“ í 2. mgr. kemur: farþegaupplýsingadeild lögreglu og tollyfirvalda.
- 3. mgr. orðast svo:
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Skyldur flutningsaðila og heimild lögreglu og tollyfirvalda til að safna og skiptast á upplýsingum um farþega og áhöfn.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 23. gr. laganna:- Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: upplýsingaskyldu skv. 2. mgr. 17. gr. og söfnun, vinnslu, miðlun, þar á meðal til erlendra yfirvalda, og varðveislu upplýsinga um farþega og áhöfn, einkum upplýsinga í farþegabókunargögnum loftfara, sbr. 3. og 4. mgr. sömu greinar, en um miðlun fer að öðru leyti eftir ákvæðum III. kafla laga um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi, nr. 75/2019.
- H- og i-liður 2. mgr. falla brott.
4. gr.
Við 2. mgr. 5. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi: að starfrækja farþegaupplýsingadeild í samstarfi við tollyfirvöld og önnur viðeigandi stjórnvöld sem annast móttöku, vinnslu og miðlun upplýsinga um farþega og áhöfn.5. gr.
42. gr. laganna orðast svo:Lögreglu er heimil vinnsla og miðlun upplýsinga um farþega og áhöfn í samræmi við lög um landamæri og reglur sem settar eru á grundvelli þeirra.
6. gr.
Á eftir 3. tölul. 40. gr. laganna kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Starfræksla farþegaupplýsingadeildar í samstarfi við lögreglu og önnur viðeigandi stjórnvöld sem annast móttöku, vinnslu og miðlun upplýsinga um farþega og áhöfn.7. gr.
51. gr. a laganna orðast svo:Fyrirtækjum sem annast flutning farþega og vöru til og frá landinu er skylt að afhenda farþegaupplýsingadeild lögreglu og tollyfirvalda upplýsingar um farþega og áhöfn. Sama skylda hvílir á stjórnendum, eigendum eða umráðamönnum fara sem ferðast til og frá landinu, þar á meðal einkaflugfara og seglskipa.
Tollyfirvöldum er heimil vinnsla og miðlun upplýsinga um farþega og áhöfn í samræmi við lög um landamæri og reglur sem settar eru á grundvelli þeirra.
Ráðherra kveður nánar á um umfang upplýsingaskyldunnar og afhendingu upplýsinga til farþegaupplýsingadeildar lögreglu og tollyfirvalda, þar á meðal um form og tímasetningu.
8. gr.
Í stað orðsins „tveimur“ í 1. málsl. 1. mgr. 170. gr., 1. mgr. 171. gr., 1. mgr. 173. gr., 1. mgr. 175. gr., 1. mgr. 176. gr., 1. mgr. 177. gr., 1. málsl. 1. mgr. 178. gr. og 179. gr. laganna kemur: þremur.9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 180. gr. a laganna:- Tilvísunin „1. málsl.“ í 1. mgr. fellur brott.
- Eftirfarandi breytingar verða á 4. mgr.:
- Í stað „10.000 kr. til 100.000 kr.“ kemur: 100.000 kr. til 4.000.000 kr.
- Í stað „2.000.000 kr.“ kemur: 10.000.000 kr.
10. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 6. júní 2025.