Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 673, 156. löggjafarþing 146. mál: sorgarleyfi (aukin réttindi foreldra).
Lög nr. 32 16. júní 2025.
Hafi foreldri sem verður fyrir barnsmissi eða makamissi framið brot sem varðar refsingu samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga, og leitt hefur til fyrrnefnds missis, ber foreldrinu að endurgreiða þá fjárhæð sem greidd hefur verið á grundvelli laga þessara.
Þrátt fyrir ákvæði 7. og 18. gr. stofnast ekki réttur til greiðslna samkvæmt lögum þessum hafi foreldri framið brot sem varðar refsingu samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga og leitt hefur til barnsmissis.
Hafi foreldri framið brot sem varðar refsingu samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga og leitt hefur til barnsmissis ber foreldrinu að endurgreiða þá fjárhæð sem greidd hefur verið á grundvelli laga þessara.
Ákvæði þetta gildir til og með 31. desember 2025.
Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast 1. gr., a-, b- og d-liður 2. gr., 3. gr., 5. gr., a-liður 7. gr., 8. gr., 9. gr., 11. gr., 12. gr. og 1. tölul. c-liðar 13. gr. gildi 1. janúar 2026.
Þingskjal 673, 156. löggjafarþing 146. mál: sorgarleyfi (aukin réttindi foreldra).
Lög nr. 32 16. júní 2025.
Lög um breytingu á lögum um sorgarleyfi, nr. 77/2022 (aukin réttindi foreldra).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:- Á eftir orðinu „barnsmissis“ í 1. og 2. málsl. kemur: eða makamissis.
- Á eftir orðinu „systkin“ í 1. málsl. kemur: eða börn.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- Við 3. tölul. bætist: eða makamissi.
- Á eftir 4. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Makamissir: Þegar hjúskapar- eða sambúðarmaki foreldris andast.
- Í stað tilvísunarinnar „a–f-lið“ í 2. málsl. 5. tölul. kemur: a–g-lið.
- Á eftir orðinu „barnsmissis“ í 6. og 7. tölul. kemur: eða makamissis.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:- Á eftir orðinu „barnsmissi“ í 1. og 2. mgr. kemur: eða makamissi.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Réttur foreldris til sorgarleyfis vegna barnsmissis eða makamissis.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 8. gr. laganna:- Í stað orðsins „þrjá“ í 1. málsl. kemur: sex.
- Í stað orðsins „tvo“ í 2. málsl. kemur: þrjá.
5. gr.
Á eftir orðinu „barnsmissi“ í 1. mgr. 13. gr., 3. málsl. 5. mgr. 17. gr., 1. og 2. mgr. og 1. málsl. 4. mgr. 22. gr., og orðinu „barnsmissir“ í 2. málsl. 2. mgr. 25. gr. laganna kemur: makamissi; og: makamissir.6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. laganna:- Við 2. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: sá tími sem foreldri fær greiðslur í sorgarleyfi á grundvelli laga þessara eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldrið sótt um þær.
- Við 2. málsl. 3. mgr. bætist: eða hvort foreldri hefði átt rétt á greiðslum á grundvelli laga þessara, sbr. g-lið 2. mgr.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:- Á eftir orðinu „barnsmissi“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: makamissi.
- Í stað tilvísunarinnar „a–f-lið“ í 2. málsl. 1. mgr. og 2. og 4.–7. málsl. 2. mgr. kemur: a–g-lið.
- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Við andvanafæðingu eða barnsmissi, þar sem barnið er yngra en 24 mánaða, er foreldri heimilt að óska eftir að við útreikning á mánaðarlegri greiðslu verði tekið mið af tekjum viðkomandi á viðmiðunartímabili skv. 1.–3. mgr. 23. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, eftir því sem við á.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. laganna:- Á eftir orðinu „barnsmissi“ í 1. og 2. mgr. kemur: eða makamissi.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. laganna:- Á eftir orðinu „barnsmissi“ tvívegis í 1. málsl. 1. mgr. og í 2. mgr. kemur: eða makamissi.
- Í stað orðanna „sem barnsmissir á sér stað“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: sem foreldri verður fyrir barnsmissi eða makamissi.
10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 20. gr. laganna:- Í stað orðsins „þrjá“ í 1. málsl. kemur: sex.
- Í stað orðsins „tvo“ í 2. málsl. kemur: þrjá.
11. gr.
Á eftir orðinu „barnsmissi“ í 1. mgr., 3. mgr. og 1. málsl. 4. mgr. 21. gr. laganna kemur: eða makamissi.12. gr.
Á eftir 2. mgr. 28. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Hafi foreldri sem verður fyrir barnsmissi eða makamissi framið brot sem varðar refsingu samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga, og leitt hefur til fyrrnefnds missis, ber foreldrinu að endurgreiða þá fjárhæð sem greidd hefur verið á grundvelli laga þessara.
13. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 32. gr. laganna:- Á undan 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Í stað orðanna „í sorgarleyfi“ í 1.–7. mgr. og 1.–3. málsl. 8. mgr. kemur: á grundvelli laga þessara.
- Eftirfarandi breytingar verða á 9. mgr.:
- Á eftir orðinu „barnsmissis“ kemur: sama makamissis.
- Í stað orðanna „í sorgarleyfi skv. IV. kafla“ kemur: á grundvelli laga þessara.
14. gr.
Í stað tilvísunarinnar „3. mgr.“ í 2. mgr. 36. gr. laganna kemur: 4. mgr.15. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Þrátt fyrir ákvæði 7. og 18. gr. stofnast ekki réttur til greiðslna samkvæmt lögum þessum hafi foreldri framið brot sem varðar refsingu samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga og leitt hefur til barnsmissis.
Hafi foreldri framið brot sem varðar refsingu samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga og leitt hefur til barnsmissis ber foreldrinu að endurgreiða þá fjárhæð sem greidd hefur verið á grundvelli laga þessara.
Ákvæði þetta gildir til og með 31. desember 2025.
16. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast 1. gr., a-, b- og d-liður 2. gr., 3. gr., 5. gr., a-liður 7. gr., 8. gr., 9. gr., 11. gr., 12. gr. og 1. tölul. c-liðar 13. gr. gildi 1. janúar 2026.
17. gr.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:- Lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006: Á eftir 3. mgr. 51. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Lög um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga, nr. 104/2024: B-liður 35. gr. laganna orðast svo: Á eftir 7. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Samþykkt á Alþingi 6. júní 2025.