Ferill 118. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 674 — 118. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008 (ýmsar breytingar).
(Eftir 2. umræðu, 6. júní.)
1. gr.
Gagnreynd þekking við ákvarðanatöku.
2. gr.
a. 2. tölul. orðast svo: Réttindagreiðslur: Greiðslur, endurgreiðslur á útlögðum kostnaði, styrkir og aðrar greiðslur vegna einstaklingsbundinna réttinda; einnig dagpeningar og bætur sem eru ákvarðaðar á grundvelli laga um slysatryggingar almannatrygginga og laga um sjúklingatryggingu.
b. Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
7. Réttindi sjúkratryggðra: Réttindi á grundvelli laga þessara sem og aðstoð til sjúkra og slasaðra sem veitt er á annan hátt en með réttindagreiðslum samkvæmt lögunum.
3. gr.
a. 2. málsl. fellur brott.
b. Í stað orðanna „Utan Reykjavíkur getur sjúkratryggingastofnunin“ í 3. málsl. kemur: Sjúkratryggingastofnunin getur.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
a. Í stað orðsins „sex“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: þrjá.
b. Í stað orðanna „áður en bóta er óskað“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: áður en sótt er um réttindi eða réttindagreiðslna óskað.
c. 2. málsl. 1. mgr. fellur brott.
d. Við 4. mgr. bætast þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Við þá ákvörðun skal metið hvort einstaklingur sé raunverulega búsettur hér á landi. Skal m.a. miðað við skráningu lögheimilis í þjóðskrá samkvæmt lögum um lögheimili og aðsetur og gögn frá skattyfirvöldum skv. 3. mgr. 34. gr. Sýni þau gögn sem sjúkratryggingastofnunin aflar fram á að einstaklingur, sem er sjúkratryggður, hafi ekki raunverulega búsetu hér á landi er stofnuninni heimilt að fella niður rétt viðkomandi til sjúkratryggingar.
e. Í stað orðanna „sex mánaða búsetuskilyrðinu“ í 2. málsl. 5. mgr. kemur: skilyrði 1. mgr. um búsetu.
7. gr.
8. gr.
a. Á undan orðinu „alþjóðlega“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: gagnreyndri.
b. Orðin „á sjúkrahúsi“ í 2. mgr. falla brott.
9. gr.
Fyrirframákveðin læknismeðferð erlendis.
Sjúkratryggður skal afla samþykkis sjúkratryggingastofnunarinnar fyrir greiðsluþátttöku skv. 1. mgr. áður en meðferð hefst. Við mat á því hvort greiðsluþátttaka skuli samþykkt er stofnuninni heimilt að líta til þess hvort meðferð sé læknisfræðilega nauðsynleg með hliðsjón af biðtíma. Sé umsókn samþykkt er meðferðarkostnaður greiddur ásamt ferðastyrk.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd greinarinnar, m.a. um nánari skilyrði fyrir samþykki greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar samkvæmt ákvæðinu.
10. gr.
a. Á eftir orðunum „Flutningskostnaður milli sjúkrahúsa“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: þ.m.t. kostnaður vegna fylgdarmanns.
b. Við 4. mgr. bætist: svo sem um ábyrgð á kostnaði við flutning á sjúkrahús og til baka vegna rannsóknar án þess að sjúklingur sé lagður inn.
11. gr.
a. Í stað orðsins „árlega“ í 3. málsl. kemur: reglulega.
b. 6. málsl. fellur brott.
12. gr.
29. gr. a laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Miðlægur lyfjagreiðslugrunnur og miðlun gagna.
Vegna umsókna um útgáfu lyfjaskírteinis eru skráðar upplýsingar um lyfjaheiti, sjúkdómsgreiningu, aðrar heilsufarsupplýsingar, dagsetningu afgreiðslu og hver sótti um lyfjaskírteini. Auk þess skráir sjúkratryggingastofnunin í gagnagrunninn aðrar upplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir stofnunina til að starfrækja sérstakt greiðslukerfi fyrir lyfjakaup, upplýsingar skv. 77. gr. lyfjalaga, nr. 100/2020, og upplýsingar sem lyfjabúðir nota til útreiknings á greiðsluþátttöku lyfja samkvæmt lögum þessum.
Aðgangur að gagnagrunninum er veittur fyrir kerfi lyfjabúða, sem starfa á grundvelli lyfjalaga, eða heilbrigðisstofnana. Ábyrgðaraðilum þeirra heilbrigðisstofnana og lyfjabúða sem tengjast gagnagrunninum er skylt að halda skrá yfir þá aðila sem sótt hafa upplýsingar í grunninn.
Lyfjabúðum sem starfa á grundvelli lyfjalaga er skylt að tengjast gagnagrunninum, nýta upplýsingar gagnagrunnsins við útreikninga á greiðsluþátttöku og veita upplýsingar í hann. Heilbrigðisstofnunum er heimilt að tengjast gagnagrunninum, nýta upplýsingar gagnagrunnsins og veita upplýsingar í hann, að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Tilgangur vinnslunnar skal vera að tryggja gæði og öryggi heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að vinna að öruggri og skynsamlegri umsýslu lyfja og uppfylla lögbundnar skyldur samkvæmt lyfjalögum og lögum um heilbrigðisþjónustu.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd ákvæðisins þar sem m.a. er heimilt að kveða á um hvaða upplýsingar skuli skrá í grunninn, eyðingu skráðra upplýsinga, aðgang lyfjabúða og heilbrigðisstofnana að upplýsingum í gagnagrunninum og skyldu lyfjabúða til að veita upplýsingar í hann.
13. gr.
a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Í tengslum við þjónustutengda fjármögnun skal skrá nauðsynlegar upplýsingar, svo sem sjúkdómsgreiningar, meðferð og legutímabil sjúklinga.
b. Orðin „vegna heilbrigðisþjónustu sem fellur undir hámarksgreiðslur sjúkratryggðra, sbr. 3. mgr. 29. gr.“ í 2. mgr. falla brott.
c. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Aðgangur að gagnagrunninum er veittur fyrir kerfi heilbrigðisstofnana, heilbrigðisstarfsmanna og þjónustuveitenda. Ábyrgðaraðilum þeirra kerfa sem tengjast gagnagrunninum er skylt að halda utan um hvaða aðilar hafa sótt upplýsingar í grunninn.
d. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Miðlægur heilbrigðisþjónustugrunnur og miðlun gagna.
14. gr.
a. Í stað orðsins „Bætur“ í 1. málsl. kemur: Réttindagreiðslur.
b. Í stað orðsins „bóta“ í 2. málsl. kemur: réttindagreiðslna.
15. gr.
16. gr.
17. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Sækja skal um öll réttindi og réttindagreiðslur samkvæmt lögum þessum til sjúkratryggingastofnunarinnar. Þó getur stofnunin ákveðið að ekki þurfi að sækja um tiltekin réttindi og réttindagreiðslur. Umsóknir og beiðnir um réttindi og réttindagreiðslur skulu vera á því formi sem stofnunin ákveður.
b. Í stað orðanna „bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta“ í 2. mgr. kemur: réttindi og réttindagreiðslur.
c. 3. mgr. orðast svo:
Sjúkratryggingastofnuninni er heimilt að afla nauðsynlegra upplýsinga um skattalega heimilisfesti, heimilistryggingu og tekjur umsækjanda frá skattyfirvöldum. Stofnuninni er heimilt að afla upplýsinga um greiðslur til umsækjanda frá Tryggingastofnun ríkisins, Vinnumálastofnun, vátryggingafélögum og hjá sambærilegum stofnunum erlendis þegar við á. Þá er stofnuninni heimilt að afla upplýsinga um mat á örorku auk gagna sem matið byggist á, m.a. vottorða og gagna um heilsufar frá Tryggingastofnun ríkisins, lífeyrissjóðum og vátryggingafélögum. Enn fremur er stofnuninni heimilt að afla upplýsinga frá Fangelsismálastofnun um tímabil afplánunar. Aðilum samkvæmt þessari málsgrein er skylt að láta sjúkratryggingastofnuninni upplýsingarnar í té að því marki sem þær eru nauðsynlegar til að unnt sé að taka ákvörðun á grundvelli þeirra, óháð sérstakri þagnarskyldu. Sjúkratryggingastofnuninni er heimilt að afla framangreindra gagna rafrænt í samræmi við ákvæði 50. gr. Telji umsækjandi upplýsingar frá framangreindum aðilum ekki réttar skal hann leggja fram gögn því til staðfestingar.
d. 1. málsl. 5. mgr. orðast svo: Ef ekki reynist unnt að taka ákvörðun um réttindi og réttindagreiðslur og endurskoðun þeirra vegna skorts á nauðsynlegum upplýsingum sem rekja má til umsækjanda er sjúkratryggingastofnuninni heimilt að fresta ákvörðun og greiðslu þar til úr því er bætt.
e. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Umsóknir og beiðnir um réttindi og réttindagreiðslur.
18. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Allar umsóknir og beiðnir skulu afgreiddar svo fljótt sem kostur er og skulu réttindagreiðslur reiknaðar frá þeim degi sem umsækjandinn hefur uppfyllt skilyrðin til þeirra.
b. Í stað orðanna „Bætur“ og „bótarétt og fjárhæð bóta“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: Réttindagreiðslur; og: réttindi og réttindagreiðslur.
c. Í stað orðanna „bótaréttur er að öðru leyti ótvíræður“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: réttindi eru að öðru leyti ótvíræð.
d. 4. mgr. orðast svo:
Ákvarðaðar réttindagreiðslur falla niður ef þær eru ekki sóttar innan tólf mánaða. Ákvarða má réttindagreiðslur á ný ef rökstudd umsókn eða beiðni berst.
e. 5. mgr. orðast svo:
Grundvöll ákvarðana um réttindi og réttindagreiðslur má endurskoða hvenær sem er og samræma réttindagreiðslur þeim breytingum sem orðið hafa.
f. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Ákvarðanir um réttindi og réttindagreiðslur.
19. gr.
20. gr.
a. Í stað orðanna „bætur“ og „ofgreiddar bætur frá bótum“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: réttindagreiðslur; og: ofgreiðslur frá réttindagreiðslum.
b. Í stað orðsins „bætur“ í 2. mgr. kemur: fyrir réttindi samkvæmt lögum þessum.
c. Í stað orðsins „bótum“ og „bóta“ í 3. mgr. kemur: réttindagreiðslum; og: réttindagreiðslna.
d. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Ofgreiðslur og vangreiðslur.
21. gr.
22. gr.
Greiðslur á grundvelli fjármögnunarlíkana.
23. gr.
24. gr.
Ákvæði upplýsingalaga um málshraða gildir ekki um beiðnir um upplýsingar sem tengjast yfirstandandi viðræðum sjúkratryggingastofnunarinnar við veitendur heilbrigðisþjónustu eða aðra rekstraraðila, ef stofnunin telur að afhending upplýsinganna geti haft neikvæð áhrif á framgang samningaviðræðna. Berist sjúkratryggingastofnuninni beiðni um upplýsingar, t.d. um rekstur, verð, sértækar tæknilausnir, fjárhagsmálefni og viðskipti aðila, eða gögn er varða undirbúning samningsgerðar, er stofnuninni heimilt að fresta afgreiðslu beiðninnar þar til viðræðum er lokið eða virkir hagsmunir ekki lengur fyrir hendi. Fer þá um afgreiðslu beiðninnar eftir ákvæðum upplýsingalaga, þ.m.t. ákvæði um málshraða. Ákvæði þessarar málsgreinar hafa að öðru leyti ekki áhrif á skyldu sjúkratryggingastofnunarinnar til að leggja fram gögn á grundvelli upplýsingalaga.
Sjúkratryggingastofnuninni er heimilt að krefjast þess að viðsemjendur stofnunarinnar gæti trúnaðar um tilteknar upplýsingar sem veittar eru meðan á samningaviðræðum stendur.
25. gr.
26. gr.
27. gr.
Sjúkratryggingastofnuninni er heimilt að gera kröfu um faggildingu á starfsemi þeirra sem veita þjónustu sem stofnunin greiðir fyrir, þar á meðal rannsóknarstofa.
28. gr.
29. gr.
a. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Sjúkratryggingastofnuninni er jafnframt heimil vinnsla persónuupplýsinga um notendur þjónustu sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva og annarra veitenda heilbrigðisþjónustu sem sóttar eru frá umræddum aðilum, eða eftir atvikum frá embætti landlæknis, í tengslum við gerð og framkvæmd samninga um greiðsluþátttöku sjúkratryggingastofnunarinnar, samninga um þjónustutengda fjármögnun og greiðslur á grundvelli fjármögnunarlíkana.
b. 2. og 3. málsl. 1. mgr. falla brott.
c. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Við vinnslu skv. 1. mgr. skal gætt að ákvæðum laga um réttindi sjúklinga eftir því sem við á. Miðlun slíkra gagna fer í gegnum örugga vefgátt sjúkratryggingastofnunarinnar eða þjónustugátt hins opinbera sem er með aðgangsstýringum, rekjanleika og dulkóðun.
d. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Öll samskipti og birting gagna, þar á meðal ákvarðana, fara fram rafrænt í samræmi við lög um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
e. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Meðferð, miðlun og önnur vinnsla persónuupplýsinga.
30. gr.
Ráðherra setur reglugerð um nánari framkvæmd greinarinnar, m.a. um heimild til að draga frá réttindagreiðslum samkvæmt lögum þessum réttindagreiðslur samkvæmt erlendri löggjöf fyrir sama tímabil og greiðslur eru inntar af hendi hér á landi.
31. gr.
32. gr.