Ferill 262. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 675 — 262. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um markaði fyrir sýndareignir.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og dómsmálaráðuneyti.
Nefndinni bárust engar umsagnir í málinu.
Með frumvarpinu er innleitt í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 frá 31. maí 2023 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937, en notast hefur verið við skammstöfunina MiCA sem heiti á þessum gerðum. Samhliða gildistöku MiCA tók gildi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1113 frá 31. maí 2023 um upplýsingar sem fylgja skulu millifærslum fjármuna og tiltekinna sýndareigna og um breytingu á tilskipun (ESB) 2015/849. Sú tilskipun er innleidd í lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnum hryðjuverka, nr. 140/2018.
Meiri hlutinn leggur til tæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Við 1. gr.
a. Í stað orðanna „sem birt er í auglýsingu nr. 8/2025 í C-deild Stjórnartíðinda“ fyrra sinni í 1. mgr. komi: sem er birt á bls. 1–166 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 16. apríl 2025.
b. Í stað orðanna „sem birt er í auglýsingu nr. 8/2025 í C-deild Stjórnartíðinda“ síðara sinni í 1. mgr. komi: sem er birt á bls. 69–80 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 8. maí 2025.
2. Í stað orðanna „Eftirfarandi starfsemi er háð starfsleyfi eða skráningu“ í 1. mgr. 5. gr. komi: Eftirtaldir aðilar skulu hafa starfsleyfi eða vera skráðir.
3. Í stað orðanna „stjórnvaldsfyrirmæla settra“ í 1. mgr. 12. gr. komi: stjórnvaldsfyrirmæli sett.
4. Við 17. gr.
a. Í stað orðanna „í auglýsingu nr. 8/2025 í C-deild Stjórnartíðinda“ í a-lið 4. tölul. komi: á bls. 1–166 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 16. apríl 2025.
b. Í stað orðanna „í auglýsingu nr. 8/2025 í C-deild Stjórnartíðinda“ í b-lið 4. tölul. komi: á bls. 1–166 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 16. apríl 2025.
c. G-liður 5. tölul. orðist svo: 2. mgr. 57. gr. laganna orðast svo:
Lög þessi eru jafnframt sett til innleiðingar á:
1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/843 frá 30. maí 2018 um breytingu á tilskipun (ESB) 2015/849 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverka og um breytingu á tilskipunum 2009/138/EB og 2013/36/ESB.
2. Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1108 frá 7. maí 2018 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849 um tæknilega eftirlitsstaðla að því er varðar kröfur um tilnefningu miðlægs tengiliðar fyrir rafeyrisfyrirtæki og greiðsluþjónustuveitendur.
3. Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/758 frá 31. janúar 2019 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849 um tæknilega eftirlitsstaðla að því er varðar lágmarksráðstafanir og aukið eftirlit sem lána- og fjármálastofnanir viðhafa til að takmarka hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka í ákveðnum þriðju ríkjum.
4. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1113 frá 31. maí 2023 um upplýsingar sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna og tiltekinna sýndareigna og um breytingu á tilskipun (ESB) 2015/849, sbr. ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 frá 31. maí 2023 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 6. júní 2025.
| Arna Lára Jónsdóttir, form. |
Sigmundur Ernir Rúnarsson, frsm. |
Ásthildur Lóa Þórsdóttir. | |
| Pawel Bartoszek. | Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. | ||