Ferill 89. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 676 — 89. mál.
3. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um stjórn vatnamála (flýtimeðferð og breyting á vatnshloti).
Frá 1. minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar.
Markmið lagabreytinganna sem lúta að vatnshlotum eru afar mikilvæg. Verulegar líkur er þó á því að frekari breytinga verði þörf við innleiðingu vatnaáætlunar líkt og dr. Aðalheiður Jónsdóttir hefur ítrekað bent á. Mikilvægt er að vinnu við endurskoðun vatnalöggjafarinnar ljúki sem fyrst í þágu allra hlutaðeigandi aðila.
Jafnframt er nauðsynlegt að bæta skilvirkni leyfisferla á vandaðan hátt. Í því samhengi þarf að setja skýran fyrirvara við þá heimild sem til verður að gefa út bráðabirgðavirkjunarleyfi áður en hefðbundin yfirferð Umhverfisstofnunar og Orkustofnunar hefur farið fram og leyfi verið gefið út. Undirrituð taldi því þörf á að ákvæðinu yrði breytt þannig að slík heimild kæmi einungis til skoðunar í algjörum undantekningartilfellum að lokinni formlegri málsmeðferð og útgáfu virkjunarleyfis. Sé hliðarleið opnuð fyrr í ferlinu skapast hætta á að grafið verði undan hefðbundnum leyfisveitingarferlum og trúverðugleika þeirra. Það getur skapað frekari ágreining og aukið líkur á kæruferlum sem dregur úr skilvirkni í stað þess að stuðla að henni. Ljóst er af áliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar við 2. umræðu að sú leið var ekki farin.
Þá er mikilvægt að hafa í huga að frumvarpið felur í sér hættu á svonefndri skilvirknigildru. Þar sem ákvörðun um bráðabirgðaleyfi byggist á matskenndri túlkun Umhverfis- og orkustofnunar á því hvað teljist brýnir hagsmunir, án þess að löggjafinn veiti skýra leiðsögn um inntak slíks mats, má ætla að það geti leitt til verulegra tafa vegna álags. Ef markmið lagasetningarinnar er að auka skilvirkni væri nær að styrkja getu Umhverfis- og orkustofnunar til að afgreiða mál og þróa leyfisferla frekar án þess að slaka á kröfum um gæði málsmeðferðar. Bráðabirgðaleyfi eru auk þess kæranleg sem getur tafið ferlið enn frekar sé það leyft til skoðunar áður en hefðbundinni málsmeðferð er lokið.
Alþingi, 6. júní 2025.
Halla Hrund Logadóttir.