Ferill 361. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 677 — 361. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini B Sæmundssyni um greiðslur til frjálsra félagasamtaka.
Ráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um greiðslur til frjálsra félagasamtaka á árunum 2017–2024. Í þeim tilvikum þegar viðtakendur greiðslna eru aðilar með íslenska kennitölu hefur verið miðað við skráningu í fyrirtækjaskrá. Þegar um erlenda aðila er að ræða er skilgreining á viðtakendum sem teljast til frjálsra félagasamtaka víðari og inniheldur samtök á borð við Alþjóðaráð Rauða krossins, Ipas, Trócaire og fleiri alþjóðleg félagasamtök (e. International Non-Governmental Organization, INGO).
1. Hversu háar fjárhæðir greiddi ráðuneytið til frjálsra félagasamtaka á hverju ári undanfarin átta ár?
| Almanaksár | Heildarfjárhæð |
| 2017 | 367.310.463 |
| 2018 | 600.156.584 |
| 2019 | 542.174.055 |
| 2020 | 497.897.817 |
| 2021 | 716.900.834 |
| 2022 | 892.772.562 |
| 2023 | 1.000.133.919 |
| 2024 | 1.089.255.281 |
| Samtals | 5.706.601.515 |
2. Hvaða félagasamtök fengu á því tímabili styrki frá ráðuneytinu, bæði beina rekstrarstyrki og styrki til verkefna, og hver var upphæð hvers styrks?
Í eftirfarandi töflu má sjá styrki til félagasamtaka sem teljast til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu:
| Viðtakandi | Heildarfjárhæð |
| ABC barnahjálp | 71.200.069 |
| Aberdeen Women's Centre | 2.000.000 |
| Action Aid Malawi | 4.785.600 |
| Alþjóðaráð Rauða krossins | 249.983.358 |
| Ascent Soccer | 5.845.715 |
| Aurora velgerðarsjóður | 36.513.392 |
| Áhugamannafélag Afríka 20:20 | 3.000.000 |
| Barnaheill – Save the Children | 561.665.834 |
| Björt sýn – styrktarfélag | 4.000.000 |
| CLF á Íslandi, félag | 52.865.232 |
| Enza, samtök | 11.495.830 |
| Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi | 80.990.450 |
| Go Fund a Girl Child | 8.606.371 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | 907.528.711 |
| Ipas | 116.093.958 |
| Íslenska barnahjálpin | 4.000.000 |
| Landssamband ungmennafélaga | 11.906.641 |
| Landssamtökin Þroskahjálp | 32.382.560 |
| Læti!, félagasamtök | 13.900.000 |
| Outright International | 10.000.000 |
| OXFAM | 34.902.861 |
| Palestinian Medical Relief Society | 95.865.065 |
| Rauði krossinn á Íslandi | 2.031.297.474 |
| Samband íslenskra kristniboðsfélaga | 109.640.400 |
| Save the Children International | 41.028.343 |
| Security Council Report | 2.002.000 |
| Slysavarnafélagið Landsbjörg | 5.344.519 |
| SOS Barnaþorpin | 487.379.610 |
| Sól í Tógó | 11.125.107 |
| SPES – alþjóðleg barnahjálp Ísl | 550.245 |
| Stómasamtök Íslands | 4.640.000 |
| Styrktarfélag Haven Rescue Home | 4.000.000 |
| Styrktarfélagið Broskallar | 83.500.000 |
| Styrktarsjóður UMOJA á Íslandi | 343.970 |
| The Gender Justice Unit | 15.269.369 |
| Trócaire | 63.896.228 |
| UN Women Ísland | 107.052.680 |
| Unicef Ísland | 73.000.000 |
| Vinir Kenía og Tansaníu | 3.322.988 |
| Women Power | 4.000.000 |
| Women's Centre for Legal Aid and Counselling | 93.455.166 |
| Samtals | 5.460.379.746 |
Í eftirfarandi töflu má sjá aðra styrki til félagasamtaka:
| Viðtakandi | Heildarfjárhæð |
| Arctic Economic Council | 8.200.020 |
| CAFF-skrifstofan á Íslandi | 13.500.000 |
| Hringborð Norðurslóða – Arctic | 75.000.000 |
| Icelandic Festival of Manitoba | 5.702.350 |
| Kalak, grænlensk-íslenska félagið | 1.500.000 |
| Leif Eriksson Icel. Club | 1.576.200 |
| Leikhúsið 10 fingur | 750.000 |
| Loftslagsrannsóknir | 30.000.000 |
| Lögberg-Heimskringla | 11.997.713 |
| Mannréttindaskrifstofa Íslands | 31.300.000 |
| Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi | 18.000.000 |
| Norðurslóðaviðskiptaráðið | 10.075.000 |
| Norræna félagið á Íslandi | 2.800.000 |
| PAME-skrifstofan á Íslandi | 20.163.737 |
| Varðberg, samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál | 952.177 |
| Þjóðræknisfélag Íslendinga | 11.300.000 |
| Aðrir smærri styrkir og styrktarlínur (undir 500.000 kr.) | 3.404.572 |
| Samtals | 246.221.769 |