Ferill 467. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 682 — 467. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um veðmálastarfsemi.
Frá Sigurþóru Steinunni Bergsdóttur.
1. Hvernig hyggst ráðherra bregðast við aukinni ólöglegri veðmálastarfsemi?
2. Telur ráðherra þörf á að endurskoða lagaumgjörð eða styrkja eftirlit með fjárhættuspilum á netinu til að koma í veg fyrir ólöglega starfsemi og ef svo er, með hvaða hætti?
3. Telur ráðherra þörf á að bregðast sérstaklega við þeirri þróun að starfseminni sé sérstaklega beint að ungmennum?
Munnlegt svar óskast.