Ferill 266. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 684 — 266. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (EES-reglur, móttaka úrgangs í höfnum).
Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Umhverfis- og orkustofnun og Vegagerðinni.
Nefndinni bárust fimm umsagnir auk minnisblaðs frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004, og afleiddar breytingar á hafnalögum, nr. 61/2003, vegna innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 frá 17. apríl 2019 um móttökuaðstöðu í höfnum til afhendingar úrgangs frá skipum, um breytingu á tilskipun 2010/65/ESB og um niðurfellingu tilskipunar 2000/59/EB. Lagðar eru til breytingar á lögunum hvað varðar skilgreiningar á hugtökum, skyldu hafnarstjórna til að gera áætlun um móttöku úrgangs og farmleifa og breytingu á gildissviði laganna varðandi tiltekin skip.
Umfjöllun nefndarinnar.
Undanþáguheimild frá greiðslu gjalda fyrir fiskiskip og skemmtibáta.
Í 3. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 11. gr. c laga um varnir gegn mengun hafs og stranda en sú grein hefur að geyma ákvæði varðandi úrgangsgjald. Í b-lið 3. gr. er lagt til að unnt verði að undanskilja frá greiðslu úrgangsgjalds fiskiskip og skemmtibáta sem ekki mega flytja fleiri en 12 farþega sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda.
Í umsögnum Samtaka atvinnulífsins og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi voru gerðar athugasemdir við ákvæðið þess efnis að undanþáguheimildin væri ekki nægjanlega skýr þar sem hún væri háð reglulegri komu í höfn og greiðslu gjalda. Nauðsynlegt sé að skýra betur hvaða skilyrði þyrfti að uppfylla til að njóta undanþágunnar en heimildin sé mikilvæg til þess að stuðla að og viðhalda markvissri úrgangsstjórnun og uppbyggingu innviða fyrir úrgangsstjórnun í sjávarútvegi sem þegar hafi skilað miklum árangri. Þá kom fram að móttaka og meðhöndlun veiðarfæraúrgangs væri í vel skilgreindum farvegi hér á landi en frá árinu 2005 hafi verið í gildi samningur milli SFS og Úrvinnslusjóðs þess efnis að samtökin annast söfnun, móttöku, flutning og úrvinnslu veiðarfæra sem innihalda plast. Samningurinn byggist á undanþáguheimild í 8. gr. laga um úrvinnslugjald, nr. 162/2002, og kveði á um að fjármögnun kerfisins sé á ábyrgð útgerða og veiðarfæragerða. Móttökustöðvar þessa veiðarfærakerfis séu nú 14 um land allt þar sem tekið sé gjaldfrjálst á móti öllum veiðarfæra- og netaúrgangi frá sjávarútvegi og fiskeldi. Þá sé kerfið opið öllum óháð því hvort viðkomandi er viðskiptavinur tiltekinnar veiðarfæragerðar eða aðili að SFS. Úrgangsstjórnun hafi stóreflst síðustu árin með markvissum úrbótum og fjárfestingum af hálfu útgerða og veiðarfæragerða og sé því rétt að undanþágu fiskiskipa frá úrgangsgjaldi verði viðhaldið með skýrum hætti.
Meiri hlutinn bendir á að þrenn lög gilda um úrgangsstjórnun útgerða, þ.e. lög um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, lög um úrvinnslugjald, nr. 162/2002, og lög um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004. Meginreglur um meðhöndlun úrgangs og úrgangsstjórnun er að finna í lögum um meðhöndlun úrgangs en sérreglur í hinum lögunum. Að mati meiri hlutans verður að skýra þessa lagabálka saman þegar kemur að úrgangsstjórnun útgerða. Þannig er kveðið á um meðhöndlun veiðifæraúrgangs í lögum um úrvinnslugjald og er í gildi samningur milli Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Úrvinnslusjóðs um þann úrgang. Meiri hlutinn áréttar það sem fram kemur í greinargerð frumvarpsins að því er ekki ætlað að umbylta núverandi framkvæmd varðandi úrgangsstjórnun fiskiskipa heldur einungis að gæta að samræmi ákvæða laga um varnir gegn mengun hafs og stranda við áðurnefnda tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins. Að mati meiri hlutans má gera ráð fyrir að samningur SFS og Úrvinnslusjóðs gildi áfram á grundvelli laga um úrvinnslugjald og 11. gr. c laga um varnir gegn mengun hafs og stranda með þeim breytingum sem 3. gr. frumvarpsins leggur til taki til alls annars úrgangs sem fellur til um borð í skipum en veiðarfæraúrgangs. Hvað varðar skilyrði undanþáguheimildarinnar um reglulega komu í höfn og greiðslu gjalda bendir meiri hlutinn á að um er að ræða sömu skilyrði og eiga við um undanþágu fyrir skip í áætlunarsiglingum skv. 2. málsl. 3. mgr. 11. gr. c laganna. Þannig verður kveðið á um grunnskilyrði undanþágunnar fyrir fiskiskip og skemmtibáta í lögum en hún svo útfærð nánar í reglugerð, sbr. 4. gr. reglugerðar um gjaldtöku í höfnum vegna losunar, móttöku, meðhöndlunar og förgunar úrgangs og farmleifa frá skipum, nr. 1201/2014.
Eftirlit Umhverfis- og orkustofnunar.
Í umsögn Umhverfis- og orkustofnunar kemur fram að tryggja þurfi lagastoð fyrir skoðunum á skipum í tengslum við eftirlit með framkvæmd laganna og kveða þurfi á um heimild stofnunarinnar til þess að innheimta gjald fyrir slíkar skoðanir. Skv. 1. málsl. 1. mgr. 11. gr. d laganna hefur Umhverfis- og orkustofnun eftirlit með móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum í höfnum, tilkynningum um úrgang, áætlunum hafna og að til staðar sé aðstaða fyrir móttöku úrgangs. Meiri hlutinn tekur undir það mat ráðuneytisins í minnisblaði þess til nefndarinnar að ekki sé þörf á breytingu ákvæðisins þar sem hlutverk stofnunarinnar samkvæmt ákvæðinu að hafa eftirlit með móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum í höfnum feli í sér heimild til að skoða skip eftir atvikum. Þá bendir meiri hlutinn á að skip sæta skoðunum og eftirliti Samgöngustofu samkvæmt skipalögum, nr. 66/2021. Hvetur meiri hlutinn til þess að kannaðir verði möguleikar á samþættingu eftirlits samkvæmt lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda við annað eftirlit sem til staðar er með skipum.
Breytingartillögur.
Heimild eða skylda til veitingar undanþágu frá greiðslu úrgangsgjalds.
Eins og fram hefur komið er í b-lið 3. gr. frumvarpsins að finna undanþáguheimild frá greiðslu úrgangsgjalds skv. 1. mgr. 11. gr. c fyrir fiskiskip og skemmtibáta, sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda. Skv. 1. málsl. 3. mgr. 11. gr. c má lækka gjaldið ef umhverfisstjórnun, hönnun, búnaður og starfræksla skips er með þeim hætti að skipstjóri geti sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð.
Í umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar var bent á að frumvarpið og lögin ættu að hvetja fyrirtæki til að vera með úrgangsmál sín í lagi og fá fyrirtæki til að flokka með því að beita ívilnunum með frekari hætti en nú sé gert. Það mætti m.a. gera með því að gera þær breytingar á 3. gr. frumvarpsins að það eigi að veita undanþágu frá greiðslu gjalda í stað þess að það megi og að gjald skv. 1. mgr. skuli lækka en ekki einungis að það sé heimilt ef umhverfisstjórnun, hönnun, búnaðar og starfræksla skips sé með þeim hætti að skipstjóri geti sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð. Meiri hlutinn tekur undir þessi sjónarmið og telur mikilvægt að stutt sé við góða úrgangsstjórnun með öllum tiltækum leiðum og að þau fyrirtæki sem geri vel í þeim efnum skuli njóta undanþágu frá gjaldtöku skv. 1. mgr. 11. gr. c um úrgangsgjald. Leggur því meiri hlutinn til breytingu á 3. gr. frumvarpsins þess efnis.
Aðrar breytingar.
Í umsögn Umhverfis- og orkustofnunar var vakin athygli á því að tilvísun í reglugerð nr. 792/2004 í 11. gr. a og 12. gr. laganna væri úrelt þar sem reglugerðin hefði verið felld úr gildi með reglugerð nr. 1200/2014 um móttöku á úrgangi og farmleifum frá skipum. Þá var lagt til að fella brott 5. mgr. 12. gr. laganna til einföldunar og aukinnar skilvirkni í upplýsingagjöf. Að höfðu samráði við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leggur meiri hlutinn til breytingar vegna þessa á lögunum sem eru tæknilegs eðlis og ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif. Að lokum er lögð til lagfæring á orðalagi í a-lið 1. gr. frumvarpsins þess efnis að í stað þess að vísað sé til ytra yfirborðs skips sé notað orðalagið ytra byrði skips.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
2. Á eftir 2. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 11. gr. a laganna:
a. Í stað tilvísunarinnar „skv. II. viðauka við reglugerð nr. 792/2004 um móttöku á úrgangi frá skipum“ kemur: samkvæmt viðauka II við reglugerð um móttöku á úrgangi og farmleifum frá skipum.
b. Í stað tilvísunarinnar „sbr. 3.–5. mgr.“ kemur: sbr. 3.–4. mgr.
3. B-liður 3. gr. orðist svo:
Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr.:
a. Í stað orðsins „má“ í 1. og 2. málsl. kemur: skal.
b. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Einnig skal veita undanþágu frá greiðslu gjalda skv. 1. mgr. fyrir fiskiskip og skemmtibáta sem ekki mega flytja fleiri en 12 farþega sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda.
4. Á eftir 3. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:
a. Í stað tilvísunarinnar „reglugerð nr. 792/2004 um móttöku á úrgangi frá skipum“ í 3. mgr. kemur: reglugerð um móttöku á úrgangi og farmleifum frá skipum.
b. 5. mgr. fellur brott.
Jens Garðar Helgason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 6. júní 2025.
| Guðbrandur Einarsson, form. |
Jónína Björk Óskarsdóttir, frsm. | Ása Berglind Hjálmarsdóttir. | |
| Dagur B. Eggertsson. | Sigurður Helgi Pálmason. | ||